bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Rafmagnsleysi í tíma og ótíma í e30
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=17881
Page 1 of 1

Author:  jon mar [ Sat 14. Oct 2006 23:25 ]
Post subject:  Rafmagnsleysi í tíma og ótíma í e30

Bara að spá hvað getur orsakað það.

Minn verður rafmagnslaus eftir nokkra daga stöðu. Ca ef hann er látinn vera í 4 daga.

Reyndar loga alltaf service ljósin í mælaborðinu, hvort sem það er kveikt á honum eða ekki. Líklega í tengslum við ónýtt battery á prentplötunni.

Er það virkilega nægilegt til að bíllinn verði alveg dead á fáum dögum?

Einhverjar aðrar hugmyndir vel þegnar líka.

Author:  IngóJP [ Sat 14. Oct 2006 23:33 ]
Post subject: 

Slappur geymir......

Hleður bíllinn ekki alveg?

Author:  jon mar [ Sat 14. Oct 2006 23:35 ]
Post subject: 

Ég skipti út geyminum fyrir einhverjum vikum síðan. Hann var í góðu lagi þá.

Bíllinn virðist hlaða þokkalega vel bara. Þetta er aldrei vesen ef ég hef sett hann í gang á tveggja til þriggja daga fresti.

Author:  IngóJP [ Sat 14. Oct 2006 23:46 ]
Post subject: 

Myndi allaveganna mæli geyminn og hleðsluna bara til að prufa....

Geri alveg fastlega ráð fyrir að þetta var nýr geymir sem þú settir í hann

svo er spurning hvort það leiði út eitthverstaðar og geymirinn tæmi sig

Author:  jon mar [ Sat 14. Oct 2006 23:56 ]
Post subject: 

Geymirinn var ekki nýr, en hann var í mjög góðu standi enda frekar nýlegur.

Díóðurnar í í þjónustuljósunum loga stanslaust, líka þegar dautt er á bílnum og hann er læstur. En mér finnst ótrúlegt að þær taki svona mikið rafmagn að hann verði straumlaus svona fljótt. Maður veit samt aldrei.

Ef þetta leysist ekki neyðist maður liklega til að senda hann á eitthvert rafmagnsverkstæðið til að fá þetta tip top :roll:

Author:  IngóJP [ Sun 15. Oct 2006 00:39 ]
Post subject: 

búinn að prufa að kíkja á lóðningarnar í mælaborðinu?

Þar sem að þau loga stanslaust þá þýðir að rafmagnið lekur....

sem orsakar þetta rafmagnsleysi.... ef þú hefur aðstöðu eða þekkingu þá myndi ég kíkja á þetta taka það úr og kíkja á þetta

http://home.comcast.net/%7Ecdeegan9/das ... ard_1.html

kemur þér eitthvað áfram þetta svona sem ég man í fyrstu

Author:  jon mar [ Sun 15. Oct 2006 00:50 ]
Post subject: 

var eitthvað búinn að heyra af því að ef batteryið í ljósaborðinu er orðið ónýtt logi þetta. Ætla að skipta út þessu batteryi við tækifæri og sjá hvort þetta lagist ekki þá.

Óþarfi að áætla þetta eitthvað svakalegt strax kannski :)

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/