Page 1 of 1

M20B20 mjöööög þungur í gang kaldur

PostPosted: Tue 10. Oct 2006 08:08
by Bjöggi
ég er alveg viss um að hann sé að fá of mikið bensín því þegar ég klemmi fyrir bensínslönguna þá yfirleitt fer hann í gang eftir það. það eru í honum ný kerti og held ég allt í lagi með allt í kringum háspennta búnaðinn en eins og ég segi þá virðist hann vera að bleyta sig. svo þegar hann loksins fer í gang gengur hann eins og klukka.

er þetta lýsing sem einhver hér inni kannast við?

Re: M20B20 mjöööög þungur í gang kaldur

PostPosted: Tue 10. Oct 2006 08:58
by gstuning
The Executive wrote:ég er alveg viss um að hann sé að fá of mikið bensín því þegar ég klemmi fyrir bensínslönguna þá yfirleitt fer hann í gang eftir það. það eru í honum ný kerti og held ég allt í lagi með allt í kringum háspennta búnaðinn en eins og ég segi þá virðist hann vera að bleyta sig. svo þegar hann loksins fer í gang gengur hann eins og klukka.

er þetta lýsing sem einhver hér inni kannast við?


spurning hvort að aðrir skynjarar séu eitthvað skrýtnir, þá einna helst
AFM og vatnshitaskynjarinn

PostPosted: Tue 10. Oct 2006 09:17
by siggir
Ég lendi stundum í þessu. Gerist aðallega þegar það er mjög blautt, ég hef einhvern skynjara grunaðann.

PostPosted: Tue 10. Oct 2006 09:42
by elli
Á enginn í þetta annann AFM til að prófa? Kostar hann ekki augun úr ef hann er tekinn nýr?

PostPosted: Tue 10. Oct 2006 10:44
by Bjöggi
já hvernig er það getur ekki einhver lánað mér AFM til að prófa í 1-2 daga?

ég skal meirað segja skilja eftir tryggingu :wink: mér er alveg treystandi...