Page 1 of 1

Lyklar og Bmw

PostPosted: Tue 03. Oct 2006 18:22
by Jonni s
Hvernig er það veit einhver hvað kostar að skipta um batterí í lykli / fjarstýringu hjá umboðinu. Það er víst ógjörningur að gera það sjálfur eins og svo margt annað í þessum elskulegu bílum.

PostPosted: Tue 03. Oct 2006 19:54
by Jonni s
Ég er bara að spyrja af því að það tók mig 30 mín að ná í "rétta" manninn hjá B&L í dag og loksins þegar hann svaraði skellti hann á eða sambandið slitnaði hjá honum.

PostPosted: Tue 03. Oct 2006 20:17
by Jss
EF bíllinn er framleiddur fyrir 09/99 er hægt að skipta um rafhlöðu í honum og er yfirleitt ekkert rukkað fyrir það, þá eru gúmmítakkar á fjarstýringunni. Hins vegar ef bíllinn er framleiddur eftir 09/99 hefur B&L ekki verið að skipta um rafhlöður þar sem þá er hleðslurafhlaða í lyklinum og hleðst hann því sjálfkrafa í svissinum, þar að auki er rafhlaðan ekki fáanleg frá BMW. Þá eru þrír takkar í röð úr plasti og BMW merkið á læsingartakkanum í miðjunni.

Ef þú ert með nýrri gerðina af lykli þá myndi ég í þínum sporum fara í góðan bíltúr, 30 mínútna eða meira og sjá hvort það bjargi ekki málunum. Ef ekki þá er lítið annað í stöðunni en að panta nýjan lykil myndi ég halda. Þó myndi ég prófa að renna við með lykilinn og bílinn á verkstæðið uppí B&L og fá þá til að kíkja á þetta. (semsagt ekki panta tíma) ;)

Vona að þetta hjálpi þér. ;)

PostPosted: Wed 04. Oct 2006 00:20
by Gunni
Jss wrote:EF bíllinn er framleiddur fyrir 09/99 er hægt að skipta um rafhlöðu í honum og er yfirleitt ekkert rukkað fyrir það, þá eru gúmmítakkar á fjarstýringunni. Hins vegar ef bíllinn er framleiddur eftir 09/99 hefur B&L ekki verið að skipta um rafhlöður þar sem þá er hleðslurafhlaða í lyklinum og hleðst hann því sjálfkrafa í svissinum, þar að auki er rafhlaðan ekki fáanleg frá BMW. Þá eru þrír takkar í röð úr plasti og BMW merkið á læsingartakkanum í miðjunni.

Ef þú ert með nýrri gerðina af lykli þá myndi ég í þínum sporum fara í góðan bíltúr, 30 mínútna eða meira og sjá hvort það bjargi ekki málunum. Ef ekki þá er lítið annað í stöðunni en að panta nýjan lykil myndi ég halda. Þó myndi ég prófa að renna við með lykilinn og bílinn á verkstæðið uppí B&L og fá þá til að kíkja á þetta. (semsagt ekki panta tíma) ;)

Vona að þetta hjálpi þér. ;)


En ef maður er með eldri gerðina af svona fjarstýringarlykli (þessi með
gúmmitökkunum) og hann er alveg batterýslaus þá þarf að gera eitthvað
trix svo að maður geti opnað bílinn með honum þegar skipt hefur verið
um batterý. Er hægt að gera þetta sjálfur eða verður maður að fara uppí
bogl og láta gera það ?

PostPosted: Wed 04. Oct 2006 00:43
by Jss
Gunni wrote:
En ef maður er með eldri gerðina af svona fjarstýringarlykli (þessi með
gúmmitökkunum) og hann er alveg batterýslaus þá þarf að gera eitthvað
trix svo að maður geti opnað bílinn með honum þegar skipt hefur verið
um batterý. Er hægt að gera þetta sjálfur eða verður maður að fara uppí
bogl og láta gera það ?


Ef þú átt eigendahandbókina þá stendur að mig minnir hvernig þú átt að kókða hana inn. Ég man það satt að segja ekki, getur ábyggilega fundið það á netinu. ;)

Annars er þetta eitthvað á þennan veg:

Sitja inní bílnum með allar hurðir, líka skottið ásamt öllum gluggum lokaða. Setja lykilinn í stöðu 1 eða 2, ekki starta, halda síðan opnunartakkanum inni og ýta 5-10 sinnum á læsingartakkann. (Birt án ábyrgðar) ;)

PostPosted: Wed 04. Oct 2006 00:51
by IceDev
Well, ég veit ekki hvaða lykil þú ert með en þegar að ég skipti um batterí á mínum þá var það svona

Taka hlífina af

skrúfa skrúfurnar burt

skipta um batterí

skrúfa skrúfur á

skella hlíf á

Voila...ef þetta er eldri týpan þá á það ekkert að vera meira vesen en þetta

PostPosted: Wed 04. Oct 2006 00:55
by Jss
IceDev wrote:Well, ég veit ekki hvaða lykil þú ert með en þegar að ég skipti um batterí á mínum þá var það svona

Taka hlífina af

skrúfa skrúfurnar burt

skipta um batterí

skrúfa skrúfur á

skella hlíf á

Voila...ef þetta er eldri týpan þá á það ekkert að vera meira vesen en þetta


Það kemur oft fyrir hjá mönnum að kóðinn fyrir hurðaopnunina dettur út. ;)

Sérstaklega ef lykillinn er lengi rafmagnslaus. En að sjálfsögðu á þetta helst að vera svona eins og þú lýsir því. ;)

PostPosted: Wed 04. Oct 2006 00:56
by IceDev
Fannst þetta líka vera absúrd langur þráður fyrir ekki minna vesen en þetta :)

Vonandi virkar þetta allavega svona hjá þér líka

PostPosted: Wed 04. Oct 2006 09:24
by Gunni
IceDev wrote:Well, ég veit ekki hvaða lykil þú ert með en þegar að ég skipti um batterí á mínum þá var það svona

Taka hlífina af

skrúfa skrúfurnar burt

skipta um batterí

skrúfa skrúfur á

skella hlíf á

Voila...ef þetta er eldri týpan þá á það ekkert að vera meira vesen en þetta


Drengur ](*,) Auðvitað skiptir maður svona um batterýið. Ég á 2 lykla og
annar þeirra er búinn að vera dauður lengi, og það stendur inní hólfinu
fyrir batterýið að það þurfi að endur linka hann ef hann hefur verið alveg
rafmagnslaus í einhverjar fáar mínútur.

PostPosted: Wed 04. Oct 2006 12:22
by Jonni s
IceDev wrote:Well, ég veit ekki hvaða lykil þú ert með en þegar að ég skipti um batterí á mínum þá var það svona

Taka hlífina af

skrúfa skrúfurnar burt

skipta um batterí

skrúfa skrúfur á

skella hlíf á

Voila...ef þetta er eldri týpan þá á það ekkert að vera meira vesen en þetta


Ég er greinilega ekki með svona lykil því að batteríið er fast undir einhverri festingu sem er lóðuð við prentplötuna.