mikill kostnaður að laga ?
skipta um ?
Varahlutir Dýrir ?
Bjarki wrote:ódýrast held ég er sett á um 250€ á ebay.de, ég prófaði samt að senda fyrirspurn á einn seljanda og hann vildi ekki senda beint heim á Ísland.
Setti svona í bíl í vor eigandinn endaði með að kaupa beint af Schmiedmann, það var miklu ódýrara en að fara út í TB og versla þar, þ.e. ódýrara að kaupa í smásölu í Schmiedmann, senda pakkann með venjulegu póstfyrirtæki og borga aðflutingsgjöld af öllu draslinu.
Sett: knastás, undirlyfturnar, camfollowers og nýtt olíurör/smurrör.
Vinnan við að setja þetta í með nýrri tímareim er svona >5klst
Stefan325i wrote:Hvernig bíll er þetta.
Svona vél er ekkert svakalega dýr, 20þ eða eitvhað
Bjarki wrote:Þetta er verðlagt á 48.800.- hjá TB.
Getur skoðað www.schmiedmann.dk með verð hjá þeim.
Hérna er eitt svona sett á ebay.de, en þeir senda sennilega ekki til Íslands:
http://cgi.ebay.de/Nockenwelle-n-Kit-NE ... dZViewItem
Annar mótor þarf ekkert endilega að vera betri, það er vitað mál að þessar undirlyftur eru ekkert sérstakar og það er oft leiðinlegt hljóð í m40 mótorum útaf lélegum/slöppum undirlyftum. Einnig gerist það að olíurörið stíflast eða losnar og þá fær knasásinn ekki nógu góða smurningu og allt fer í rugl.
Ef þú kaupir aðra notaða vél þá er ekkert víst að hún sé betri. Snýst bara um það hvað þú ætlar að gera við bílinn eiga/selja og hversu mikið þú metur tímann þinn, þ.e. ef þú lagar þetta sjálfur. Einnig spurning hversu góður bíllinn er.
Veit að það er einn svona bíll í vöku (518i m40), getur prófað að taka ventlalokið af honum og skoðað ásinn.
Users browsing this forum: No registered users and 17 guests