bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Sjálfskipting (M60B40 vél) https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=17649 |
Page 1 of 1 |
Author: | Arnarf [ Sun 01. Oct 2006 05:30 ] |
Post subject: | Sjálfskipting (M60B40 vél) |
Mér er farið að finnast sjálfsskiptingin í bílnum mínum sé að haga sér smá öðruvísi núna. Hún er alveg eins og hún á að vera þangað til að hún á að fara í 5 gír. Hún er alltaf mikið lengur í 4 gír. Hann var venjulega að skipta í 5gír í 80-90km/klst og var þá að malla í sirka 1600RPM. Núna þegar ég er alveg í 110 er hann enn í 4.gír og þá á sirka 2400RPM. Svo ef ég botna hann og þegar ég er kominn í sirka 80km/klst í öðrum gír, hætti svo að auka hraðan og held jöfnum hraða (80) þá skiptir hann sér ekki upp sjálfur, þá þarf ég að skipta í 4. og aftur í D, en þá skiptir hann sér upp alveg í 5. gír, sú aðferð virkar líka þegar ég er á 100 í 4.gír, þá er nóg að setja stöngina á 4 og aftur í D til að fara í 5. gír Hefur einhver hugmynd hversvegna skiptingin er farin að haga sér svona? |
Author: | Alpina [ Sun 01. Oct 2006 08:14 ] |
Post subject: | |
ventlaboxið gæti verið að stríða þér,,, EF EKKI................ þá er þetta vont -> mál. Þetta eru miður góðar skiptingar og er yfirleitt ekki gert við þetta . Skiptingin er í tveimur hlutum. Bakkgír og Áframþrepin, yfirleitt fer bakkgírinn, með þeim afleiðingum að þú getur keyrt áfram eins og ekkert hafi í skorist,, en getur ei bakkað. Snemma árs 2002 keypti ég mér E34 530 M60B30 og stóð valið á milli 40 eða 30 mótors,, 30 mótor varð fyrir valinu ,,SÉRSTAKLEGA vegna þeirra óáræðinleika sem sjálfskiptingin hefur sýnt í 40 vélinn. Það er sama skipting í M50B25 og M60B30 ((innvolsið)) Þegar M60B44 kom á markaðinn er þetta vandamál úr sögunni þar er annað hvort GM skipting og svo áfram ZF sumir E38 M60B40 eru með sömu skipingu og þú |
Author: | Arnarf [ Sun 01. Oct 2006 14:21 ] |
Post subject: | |
Á ég að vera e-ð að spá í þessu eða? E-ð sem ég get gert? |
Author: | Djofullinn [ Sun 01. Oct 2006 16:33 ] |
Post subject: | |
Spurning með að prófa að skipta um vökva og síu á skiptingunni fyrst ? |
Author: | Arnarf [ Sun 01. Oct 2006 17:41 ] |
Post subject: | |
Djofullinn wrote: Spurning með að prófa að skipta um vökva og síu á skiptingunni fyrst ?
Var einmitt að tala við vin minn (hann er enginn bmw expert, en hann er í vélarskólanum (eða hvað sem sá skóli heitir) Hann sagði mér einmitt að gera það fyrst. Annars keyrði ég langleiðina á þingvelli til að fylgjast með þessu. Ef ég fer rólega upp í 100, þá skiptir hann sér í 5 gír eins og venjulega. En ef ég er e-ð yfir 2500rpm meðan ég fer upp í 100, þá heldur hann sér í 4.gír. Svo ef ég þjappa hann upp í 100 og hann er kannski í 5000rpm og ég set cruise control á, þá skiptir hann sér ekki upp, heldur er áfram þarna á 5000rpm. En alltaf þegar ég er hann er stillingu 4 og svo aftur í Drive, þá skiptir hann sér í 5.gír. En þetta er ekki neitt sem maður finnur sérstaklega fyrir þegar þú ert að keyra, en ég ætla allavega byrja á að skipta um síu og vökva á sjálfskiptingunni áður en ég fer að hafa einhverjar áhyggjur Fyrir utan þetta með 5gírinn þá skiptir hann sér alveg venjulega, alltaf í sirka 1700-2000rpm í innanbæjarakstri |
Author: | Arnarf [ Mon 02. Oct 2006 00:35 ] |
Post subject: | |
Sendi tb tölvupóst og var að fá reply, kostar um 20þús að skipta um vökva og síu. Á maður ekki bara að láta gera það? Edit Einhver góðhjartaður kraftsmeðlimur sem gæti gert þetta ódýrara en 20þús? |
Author: | Alpina [ Mon 02. Oct 2006 07:11 ] |
Post subject: | |
Arnarf wrote: Sendi tb tölvupóst og var að fá reply, kostar um 20þús að skipta um vökva og síu.
Á maður ekki bara að láta gera það? Edit Einhver góðhjartaður kraftsmeðlimur sem gæti gert þetta ódýrara en 20þús? vvvvááááá,, 20000 mæli með smurstöðinni VOGAR sem er við hliðinni á endurvinnslunni og fyrir neða sendibílastöðina /ALP bílaleigunni Virkilega góð þjónusta |
Author: | IngóJP [ Mon 02. Oct 2006 14:29 ] |
Post subject: | |
Alpina wrote: Arnarf wrote: Sendi tb tölvupóst og var að fá reply, kostar um 20þús að skipta um vökva og síu. Á maður ekki bara að láta gera það? Edit Einhver góðhjartaður kraftsmeðlimur sem gæti gert þetta ódýrara en 20þús? vvvvááááá,, 20000 mæli með smurstöðinni VOGAR sem er við hliðinni á endurvinnslunni og fyrir neða sendibílastöðina /ALP bílaleigunni Virkilega góð þjónusta Nýja Sendibílastöðin Knarravogi 2 er einmitt ób stöð þar svo að þetta ætti ekki að vera erfitt að finna .... Smurstöðin er í sama húsi bara að neðan verðu |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |