Page 1 of 1

E32 remote control

PostPosted: Fri 29. Sep 2006 18:52
by elli
Sælir,

nú langar mig í orginal fjarstýringu fyrir bílinn minn. Ég athugaði hvað þetta kostaði í BL með lykkli og þar voru tæp 30.000 sem mér finnst ansi mikið og ekki ráðlegt að panta það nema ég sé viss um að kerfið í bílnum mínum virki.
Image
Ef þið eigið staka fjarstýringu handa mér sem dagað hefur uppi hjá ykkur þá væri ég sáttur. Það er víst ekkert mál að prg. hana inn. Allav. tými ég ekki 30.000 í tilraunastarfsemi. Þið sjáið mynd af henni þarna fyrir ofan.

Ef þið hafið lausn á þessu fjarstýringarvandamáli (löngun) þá eru allar upplýsingar vel þegnar.

Þið sem eruð með E32 eruð þið að nota þetta hjá ykkur??

Ég man eftir frumsýningu á E32 sem ég fór á hjá Kristni Guðna á suðurlandsbrautinni þá (já í þá gömlu góðu daga, djö er ég gamall) þá tók sölumaðurinn sig til og skrúfaði niður allar rúður og opnaði topplúguna síðan gekk hann bara í burtu og ýtti á takkann og Bimminn skrúfaði upp allar rúður og lokaði topp lúgunni... fólkið gapti :shock:
Nú þegar MJÖG gamall draumur hjá mér hefur ræst langar mig til að gera svona líka :lol:

PostPosted: Sun 01. Oct 2006 02:01
by elli
No comments? :shock:

PostPosted: Sun 01. Oct 2006 08:26
by Alpina
elli wrote:No comments? :shock:



Jú...... 30000 er klink.. í þessu tilfelli
kostar ca 15000 hjá NESRADIO
með ísetningu ((kannski meira)) sem er fínt verð,,
en er ekki viss að allur hugbúnaður virki saman

PostPosted: Sun 01. Oct 2006 10:21
by Svezel
Það er svona í 750 bílnum mínum en ég er hættur að nota hana þar sem bíllinn minn þjáist af double lock veikinni. Lykillinn/fjarstýringin er líka BARA stór og einkar óþjáll í vasa

PostPosted: Sun 01. Oct 2006 11:42
by elli
Svezel wrote:Það er svona í 750 bílnum mínum en ég er hættur að nota hana þar sem bíllinn minn þjáist af double lock veikinni. Lykillinn/fjarstýringin er líka BARA stór og einkar óþjáll í vasa


Já það er líklegast rétt hjá þér þetta er svoldill hlunkur þessi búnaður.

Þakka fyrir svörin.