Mig vantar einhverskonar geðdeyfðarlyf akkúrat núna!!

Posted:
Thu 21. Sep 2006 18:35
by Jonni s
Til að gera langa sögu stutta þá er búið að vera vesen á græjunum í E39 bílnum hjá mér, hljóðið hefur verið að hverfa svona við og við þangað til nýverið að það fór alveg. Þetta er svona 50/50 tæki og skjár. Tækið sjálft virkar alveg og allar stýringar fyrir magasín og allt virðist eðlilegt nema hvað að það kemur ekkert hljóð. Ég er búinn að rífa tækið úr og opna það, búinn að skoða alla hátalara og allt virðist í lagi.
Nema hvað, ég hef samband við við ágætann mann hjá B&L og segi honum alla söguna og hann kemur alveg um hæl með þau svör að þetta sé örgjafi inní tækinu sem er að klikka og það sé ekkert hægt að gera nema að skipta yfir í buisness pakkann sem kostar mig 110.000 kr plús það að þá verð ég að lúffa skjánum.
Nú spyr ég, hvað er til ráða??
Er til einhver lausn á þessu, hafa menn verið að tengja annan magnara við þessi tæki eða??
Re: Mig vantar einhverskonar geðdeyfðarlyf akkúrat núna!!

Posted:
Thu 21. Sep 2006 19:03
by Djofullinn
Jonni s wrote:Til að gera langa sögu stutta þá er búið að vera vesen á græjunum í E39 bílnum hjá mér, hljóðið hefur verið að hverfa svona við og við þangað til nýverið að það fór alveg. Þetta er svona 50/50 tæki og skjár. Tækið sjálft virkar alveg og allar stýringar fyrir magasín og allt virðist eðlilegt nema hvað að það kemur ekkert hljóð. Ég er búinn að rífa tækið úr og opna það, búinn að skoða alla hátalara og allt virðist í lagi.
Nema hvað, ég hef samband við við ágætann mann hjá B&L og segi honum alla söguna og hann kemur alveg um hæl með þau svör að þetta sé örgjafi inní tækinu sem er að klikka og það sé ekkert hægt að gera nema að skipta yfir í buisness pakkann sem kostar mig 110.000 kr plús það að þá verð ég að lúffa skjánum.
Nú spyr ég, hvað er til ráða??
Er til einhver lausn á þessu, hafa menn verið að tengja annan magnara við þessi tæki eða??
Kaupa nýtt tæki með skjá á ebay.de? Uppfæra jafnvel í Widescreen ef þú ert ekki með það

Posted:
Thu 21. Sep 2006 19:22
by Jonni s
Gengur það beint í ?? Þarf ekki að forrita þetta uppá nýtt og gera einhverjar kúnstir?

Posted:
Thu 21. Sep 2006 20:13
by Bjössi
kom svipað fyrir hjá mér í 325 sem ég átti og þá var ónýt útgangsrás í tækinu

Posted:
Fri 22. Sep 2006 12:15
by Bjössi
Jonni s wrote:Bjössi wrote:kom svipað fyrir hjá mér í 325 sem ég átti og þá var ónýt útgangsrás í tækinu
Og hvað var gert í því?
ég fór með bílinn í nesradíó og þeir skiptu um útgangsrás, svo var allt í fína

Posted:
Fri 22. Sep 2006 13:07
by Jonni s
Bjössi wrote:Jonni s wrote:Bjössi wrote:kom svipað fyrir hjá mér í 325 sem ég átti og þá var ónýt útgangsrás í tækinu
Og hvað var gert í því?
ég fór með bílinn í nesradíó og þeir skiptu um útgangsrás, svo var allt í fína
Var þetta samskonar tæki og er í bílnum mínum? Er með E39 árg 2000 með minni skjánum og kasettutæki.

Posted:
Fri 22. Sep 2006 13:10
by Bjössi
nei ekki alveg, þetta var 2003 e46 með business cd

Posted:
Fri 22. Sep 2006 13:19
by Jonni s
Bjössi wrote:nei ekki alveg, þetta var 2003 e46 með business cd
Ok, var að tala við Nesradio, þeir eru með ýmsar lausnir en þeir gera ekki við orginal tækið.

Posted:
Fri 22. Sep 2006 13:51
by Þórir
http://cgi.ebay.de/Or-BMW-E39-Navigation-Navi-Monitor-TV-Radio-16-9-Bild_W0QQitemZ140030512628QQihZ004QQcategoryZ76083QQssPageNameZWDVWQQrdZ1QQcmdZViewItem
Þetta er það eina sem ég sé núna en ég hef oft séð svona, bæði á USA og DE ebay. Er handviss að þetta yrði ódýrara en að kaupa þennan pakka hjá B&L, sem yrði líka skref niður á við.
Kveðja
Þórir I.

Posted:
Tue 26. Sep 2006 00:54
by ingi_e30
útgangsrás dettur ekki inn og út hún bara fer og og ekkert meir.að minni bestu vitund

enn veit til þess að hátalarar hafa verið að ná jarðsambandi við boddý eða skemmdar lagnir og þá dettur allt hljóð út. enn gerist yfirleitt bara ef það er búið að skipta um hátalara.þeas búið að skipta út orginal hát. myndi prófa að taka einn og einn úr sambandi og sjá hvort það kemur hljóð.