Page 1 of 1

Húdd á E39

PostPosted: Thu 14. Sep 2006 19:05
by Djofullinn
Ok kannski er ég algjör kjáni....

En ég er búinn að lenda í því núna á tveimur E39 bílum sem ég hef átt að geta stundum engan veginn opnað húddið.
S.s get opnað það með arminum innan í bílnum, toga síðan upp arminn sem kemur í gegnum nýrun en það gerist ekki neitt.

Gerðist fyrst á fyrri 540 bílnum sem ég átti, virkaði ekki í nokkur skipti en virkaði síðan eðlilega eftir það og núna ætlaði ég að opna húddið á 520 áðan en þá gerist það sama :shock:

Ekki er þetta eitthvað öryggisdæmi þegar bíllinn er heitur?
Eða eiga þau bara til að opnast stundum ekki?

Einhverjir fleiri lent í þessu?

PostPosted: Thu 14. Sep 2006 19:34
by JonHrafn
jamm, á mínum e46, hélt ég væri bara klaufi,,erum það kannski bara :þ

PostPosted: Thu 14. Sep 2006 20:31
by Arnar 540
þegar þú nærð að opna húddið..berðu þá koppafeiti á pinnan sem er að renna i gatinu þessu ílanga gati..þá mun þetta vera til friðs :)..og ef það eru komin sona hök i gatið þá sliparu þau burt og vandamálið farið ;)

PostPosted: Fri 15. Sep 2006 00:17
by RamLing
Mjög gott trix er að láta smyrja bílin á alvöru verkstæði. Þar er smurt í læsingar og lamir.

Þar með gerist ekki svona. :)

Það vantar bara sleipiefni hjá þér ;), lenti í þessu með minn E39 og fleiri E39 bíla líka sem að ég er að smyrja.

PostPosted: Tue 19. Sep 2006 12:58
by poco
Þetta var líka vesen hjá mér. Lausnin var að herða á þessum pinnum (líkt og að herða á skrúfu) þá kom meiri spenna og málið leyst.

tt

PostPosted: Sat 16. Aug 2008 11:37
by Mazdaman
Sælir leynir eitthver a lausn fyrir þetta er i mega veseni núna þarf að komast ofan i húddið en get ekki opnað sama hvað ég toga i barkan og pinnan þá villja hudd festingarnar koma upp, væruð að hjálpa mer mega mikið ef eitthver getur hjálpað mer með þetta

Takk
Kv.Sigurður