Page 1 of 1

Game over?

PostPosted: Wed 06. Sep 2006 19:27
by bragi1
Ég prufaði að leita að eitthverju líkt þessu hér á spjallinu en virtist ekkert finna svo:

Var að keyra í gær þegar fór að banka með í vélinni. Nokkuð hávært bank sem keyrir alveg í takt með mótornum. Ónýtt?

PostPosted: Wed 06. Sep 2006 20:19
by 98.OKT
Það eru góðar líkur á að hann sé farinn á stangalegu, kannski slitin tímareym :?

PostPosted: Wed 06. Sep 2006 21:22
by Arnar 540
keðja meinaru..


en billinn fer þá ekki i gang..giska a stimpilbolta eða stangarlegu! meiri likur á stangarlegu

PostPosted: Wed 06. Sep 2006 21:36
by Jss
Það vill skila betri niðurstöðum þegar spurt er svona að segja hvernig bíl eða vél menn eru með. ;)

PostPosted: Wed 06. Sep 2006 21:52
by 98.OKT
Arnar 540 wrote:keðja meinaru..


en billinn fer þá ekki i gang..giska a stimpilbolta eða stangarlegu! meiri likur á stangarlegu


Það fer eftir því hvaða vél hann er með hvort það sé reim eða keðja :wink:

PostPosted: Thu 07. Sep 2006 17:02
by bragi1
Já að sjálfsögðu. Þetta er 320i '97 módelið, þ.e. E36. Þið vitið örugglega betur en ég hvað mótorinn heitir. Eitthvað 50 minnir mig. En bíllinn fór í gang aftur og gekk en ég þorði skiljanlega ekki að prufa hvort ég kæmist eitthvað á honum. Lét draga mig bara beint upp á TB. Bíllinn er keyrður rétt undir 200K, átti maður kannski bara að eiga von á þessu?

PostPosted: Thu 07. Sep 2006 17:09
by gstuning
nei, hvernig er olíuskipti búin að vera á honum

ef keðja hefði farið hefði hann hætt að ganga alveg,

þetta hljómar eins og lega,

PostPosted: Thu 07. Sep 2006 17:50
by Kristján Einar
gstuning wrote:nei, hvernig er olíuskipti búin að vera á honum

ef keðja hefði farið hefði hann hætt að ganga alveg,

þetta hljómar eins og lega,


hljómar eins og legan í mínum is :/

PostPosted: Fri 08. Sep 2006 01:35
by bragi1
Olíuskiptin eru búin að vera frekar dúpíus... brennir henni snöggt og ég bæti á þegar ég er farinn að heyra í ventlabanki.