Sælir.
Pústið hjá mér er farið svo ég fór í það að reyna að fá mér nýtt púst. Ég fór í Hafjarfjörðinn í BJB og þeir ætluðu að panta þetta fyrir mig á mjög góðu verði svo ég ákvað að hafa það orginal, mig vantaði n.b. bara aftasta kútinn.
Þetta var 28. júní.
Svo hringi ég með eðlilegu millibili og þeir segja að sendingin tefjist eitthvað og ég hugsa með mér.. það er allt í lagi ef ég fæ þetta undir svo ég geti nú skoðað bílinn minn. Svo hringi ég loks aftur og þeir segja að gámurinn sé kominn til landsins en þeir viti ekkert hvað er í honum fyrr en þeir geta opnað hann og svo kemur í ljós þegar þeir hafa opnað hann að pústið mitt er ekki í gámnum og eina skýringin sem ég fæ er að ég sé óheppinn því að það sé eðlilegt að 5% af pöntunum skili sér aldrei.
Þetta var í vikunni sem leið, sem þýðir að ég er búinn að bíða meir en einn og hálfan mánuð eftir engu.
Hvernig mynduð þið snúa ykkur í svona máli ? Ég veit að þeir eru mjög sanngjarnir á verðum og veita mjög góða þjónustu en þetta er eitthvað mjög skrítið fyrir fyrirtæki sem kallar sig PústÞJÓNUSTAN.
Eftir smá tal þá komumst við niður á að það væri mögulega hægt að nota ix púst undir bílinn þó að rörin þar séu um helmingi styttri og svo framlengja þeim bara í miðjukútinn með einhverju skítmixi.
Er þetta eitthvað sem er í lagi eða á ég að bíða í annan mánuð+ eftir orginal stuffi eða á ég að snúa mér að einhverjum aftermarket síðum ? Og þá hverjum ?
Það eru eftr minni bestu vitund bara þrjú fyrirtæki sem panta þennan ákveðna endakút og þetta er sjálfsagt allt pantað frá sama fyrirtæki í Þýskalandi og ég myndi varla fá betra verð en þetta svo...
Með fyrirframþökk, Geiri.