Page 1 of 3

Verkfæraspurning

PostPosted: Fri 25. Aug 2006 14:24
by burgerking
Sælir.

Langaði að forvitnast eftir reynslu hjá ykkur...

Langar að kaupa mér topplyklasett.. hvar haldiði að ég fái fínt sett (ekki eitthvað sem er að fara að skemmast á viku)

helst ekki kosta einhverja hundraþúsundkalla


Með von um skjót svör.

Hannes

PostPosted: Fri 25. Aug 2006 15:35
by xzach
Verkfærasalan ehf. Síðumúla 11

Eiga alveg fín sett sem kosta ekki morðfé. Mitt virkar ennþá allavegana :)

PostPosted: Fri 25. Aug 2006 15:41
by siggir
Mér skilst af mönnum með reynslu að Beta settin séu með því besta sem fæst. Þau eru kannski aðeins í dýrari kantinum en borga sig með endingu. Fást í bílanaust.

PostPosted: Fri 25. Aug 2006 16:43
by Twincam
siggir wrote:Mér skilst af mönnum með reynslu að Beta settin séu með því besta sem fæst. Þau eru kannski aðeins í dýrari kantinum en borga sig með endingu. Fást í bílanaust.

Ég er með 3/8" BETA sett sem ég er búinn að nota í 10 ár í allar þær viðgerðir sem ég hef staðið í.. og það er enn í fullu fjöri.. ekki einu sinni sprungið í því toppur. Og miðað við magnið af boltum sem er búið að herða og losa með þessu í gegnum tíðina, þá verð ég að mæla hraustlega með þessum settum.

PostPosted: Fri 25. Aug 2006 17:02
by Svezel
mæli með Kamasa frá Esso, solid verkfæri á fínu verði

PostPosted: Fri 25. Aug 2006 17:09
by Lindemann
Svezel wrote:mæli með Kamasa frá Esso, solid verkfæri á fínu verði


fæst þetta á esso stöðvunum eða bara esso búðinni gelgjutanga?

PostPosted: Fri 25. Aug 2006 17:51
by gstuning
ég á kamasa sett sem er ROKK solid
það er ELD gamallt, það eitt kann að skipta um vélar núna
það hefur lent í svo miklum látum 8)

svo á ég milli sett frá bílanaust , það er einnig solid , hefur ekki snappað toppur og ekkert vesen nema að ég týndi skrallinu sjálfu

svo var ég að kaupa svona tösku úr bílanaust , þetta er ALGJÖR snilld,
hellingur af toppum, bitum , lítið og stórt, allt í tösku á hjólum,
Þetta er eitt það besta sem é ghef eytt peningunum mínum í

PostPosted: Fri 25. Aug 2006 17:51
by IngóJP
Lindemann wrote:
Svezel wrote:mæli með Kamasa frá Esso, solid verkfæri á fínu verði


fæst þetta á esso stöðvunum eða bara esso búðinni gelgjutanga?


Essobúðin er flutt í Knarravog 4 Hliðin á Nýju Sendibílastöðinni og Avis Bílaleigu

PostPosted: Fri 25. Aug 2006 18:30
by burgerking
Jæja.. ég keypti sett í verkfæralagernum.. man ekki hvað það heitir en það virðist vera bara fínt... var allavega að rífa pústið undan og setja það aftur á með því :)

PostPosted: Fri 25. Aug 2006 19:20
by íbbi_
Facom

PostPosted: Fri 25. Aug 2006 19:25
by gunnar
íbbi_ wrote:Facom


Facom er snilld, hef samt brotið 2 toppa þaðan, en auðvitað fékk ég nýja að kostnaðarlausu 8)

PostPosted: Fri 25. Aug 2006 19:35
by saemi
Ég hef notað Proxon sem ég keypti fyrir löngu í BYKO. Það hefur reynst vel, skrallið er enn í fullum sving.

Síðan í seinni tíma kaupi ég alltaf Craftsman, það er mikið bang for the buck. Hef að vísu skemmt 2 skröll, en ég er heldur ekkert að spara þau. Maður kaupir bara ný ef maður skemmir þau.

PostPosted: Fri 25. Aug 2006 19:53
by IvanAnders
ég á stórt kamaza sett sem að ég hef reyndar ekki notað neitt MAD mikið, en er mjög sáttur, fínt bang for buck í þeim :wink:

PostPosted: Fri 25. Aug 2006 22:32
by elli
xzach wrote:Verkfærasalan ehf. Síðumúla 11

Eiga alveg fín sett sem kosta ekki morðfé. Mitt virkar ennþá allavegana :)


Allt flott tæki sem þið mælið með þarna.
Láki í verkfæralagernum er á flottum verðum, ég hef góða reynslu af því.

Sjálfur nota ég Craftsman á fulla tösku frá þeim með öllum toppum bæði tommum og millum, það hefur virkað flott fyrir mig.

PostPosted: Fri 25. Aug 2006 22:35
by Twincam
elli wrote:
xzach wrote:Verkfærasalan ehf. Síðumúla 11

Eiga alveg fín sett sem kosta ekki morðfé. Mitt virkar ennþá allavegana :)
Allt flott tæki sem þið mælið með þarna.
Láki í verkfæralagernum er á flottum verðum, ég hef góða reynslu af því.

Sjálfur nota ég Craftsman á fulla tösku frá þeim með öllum toppum bæði tommum og millum, það hefur virkað flott fyrir mig.
Já, Láki kallinn er með fín verð á dótinu hjá sér... og svo sakar ekki að fá fjölskylduafslátt út á að hann og mamma eru frekar náskyld 8) :lol: