Page 1 of 1

Miðstöinn blæs bara á gólfið í E36

PostPosted: Sat 19. Aug 2006 16:53
by asgeirholm
Ég er að lenda í því skemtilega efni að miðstöðinn mín blæs bara á gólfið, hún neittar að blása upp á rúðunar hvað sem ég reyni, þetta er automatisk miðstöð og það er nýbúið að taka allt í gegn kringum hana!

Gettur eitthver hjálpað mér?

PostPosted: Wed 23. Aug 2006 23:39
by asgeirholm
Plíss ég neni ekki að borga stór fé í TB fyrir aðra viðgerð

PostPosted: Wed 23. Aug 2006 23:40
by Jss
Er búið að athuga með stjórnpanelinn? Hann hefur átt það til að fara í E36 bílunum með sjálfvirku miðstöðvunum.

Þegar þú segir að það sé búið að taka allt í gegn í kringum hana hvað áttu þá við? Erfitt að svara nema vita það.

PostPosted: Thu 24. Aug 2006 13:20
by asgeirholm
ÞAð var skipt um Miðstöðvar mótor og Head unitið í mælaborðinu.
og það var viðgerð uppá 100.000 kall

PostPosted: Thu 24. Aug 2006 13:27
by Geirinn
asgeirholm wrote:ÞAð var skipt um Miðstöðvar mótor og Head unitið í mælaborðinu.
og það var viðgerð uppá 100.000 kall


Eru þetta ekki bara leifar af gamalli viðgerð ? Getur það kostað þig svo mikið ?

PostPosted: Thu 24. Aug 2006 13:42
by asgeirholm
ég er með nótu frá TB þar sem að Var bara skipt um
miðstöðarunit 40.145 kr.
miðstöðarmótor 15.904
EFni frá verkstæði 1.270
Vinna 23.900

Vsk 19.899
alls: 101.118

PostPosted: Thu 24. Aug 2006 14:05
by Jss
Þá reyndar veit ég ekki alveg hvað þetta ætti að vera, hefði skotið á miðstöðvardisplay, stjórnborðsunitið.