Page 1 of 1

Þrjú frekar pirrandi smáatriði. Tvö málana leist

PostPosted: Sat 12. Aug 2006 02:03
by Jonni s
Er með 523 e39 árg 2000 og það er þrennt sem er að angra mig þessa dagana.

1. Ýskur eða blístur sem kemur við inngjöf í akstri og breytist ef ég ég gef bílnum minna eða meira. Fannst þetta alltaf vera pústtengt en er samt ekki svo viss lengur.

2. Park distance control búnaðurinn er hættur að virka, það kemur bara eitt lang viðvörunarvæl þegar ég set í bakk sem hættir svo eftir svona 5 sek.

3. Blessað útvarpið eða eiginlega magnarinn í útvarpinu á það til að fara í verkfall og þá steinþeigir allt, cd, tv og útvarp. Svo dettur þetta inn svona hipsum hapsum sér í lagi þó ef ég svissa af og á bílnum.

Ég spyr að þessu vegna þess að þetta eru svona smávandamál sem getur tekið óratíma að finna út úr. Þannig að ef einhver hefur lent í þessu og veit hvað þarf að gera þá er ég miklu mun fljótari að komast fyrir þessi smávandamál.

Góðar stundir. :D :D

Re: Þrjú frekar pirrandi smáatriði.

PostPosted: Sat 12. Aug 2006 13:34
by Jss
Jonni s wrote:Er með 523 e39 árg 2000 og það er þrennt sem er að angra mig þessa dagana.

2. Park distance control búnaðurinn er hættur að virka, það kemur bara eitt lang viðvörunarvæl þegar ég set í bakk sem hættir svo eftir svona 5 sek.

Ef einhver kannast við einhver af þessum vandamálum þá má hann endilega tjá sig.

Góðar stundir.


Það er líklegast ónýtur einn fjarlægðarskynjarinn, kerfið lætur svona þegar það gerist. ;)

Re: Þrjú frekar pirrandi smáatriði.

PostPosted: Sat 12. Aug 2006 17:08
by Jonni s
Jss wrote:
Jonni s wrote:Er með 523 e39 árg 2000 og það er þrennt sem er að angra mig þessa dagana.

2. Park distance control búnaðurinn er hættur að virka, það kemur bara eitt lang viðvörunarvæl þegar ég set í bakk sem hættir svo eftir svona 5 sek.

Ef einhver kannast við einhver af þessum vandamálum þá má hann endilega tjá sig.

Góðar stundir.


Það er líklegast ónýtur einn fjarlægðarskynjarinn, kerfið lætur svona þegar það gerist. ;)


Ok, hvað kostar svona nemi.
Veit það einhver?

PostPosted: Sat 12. Aug 2006 17:25
by zazou
Prófaðu 575 1200.

PostPosted: Tue 15. Aug 2006 21:55
by Jonni s
Eftir að ég fékk mann með mér til að þenja bílinn á meðan ég hlustaði gaumgæfilega á hvaðan þetta hvimleiða blístur kom þá datt ég niður á það. Það var risa rifa á litla leggnum sem kemur frá neðri hluta hosunar frá lofthreinsara inná soggrein. Vélin var sum sé að sjúga falskt loft inn um þessa rifu með tilheyrandi sogblístri. Og af því að þetta var að gerast var alltaf þrálátt vélarljós í mælaborðinu sem fór nokkrum andartökum eftir að bílinn var ræstur með nýja hosu.