Page 1 of 1

e46 316i, 318i 1,9 - munur

PostPosted: Sun 06. Aug 2006 13:57
by Bjarki
Er að velta fyrir mér muninum á þessum tveimur vélum.
Veit að önnur er 105hp og hin er 118hp en þær eru með sama slagrými, þ.a.l. sömu blokk, sömu stimplar, sama hedd, sömu ventlar, sama soggreinin, sömu spíssarnir. Eina sem ég finn að er ekki það sama er knastásinn, svo er það nú sennilega tölvan.
Annars er þessi vél mjög svipuð m40 vélinni sem kom fyrst í e30! Nema m43tu er með tímakeðju og náttúrlega e-m bunka af endurbótum en bara 8 ventla.
Þá er það ekki fyrr en '01 sem kemur almennileg fjölventla 4cyl vél í e46.

Endilega ef ég er að segja e-a steypu leiðréttið og bætið í þetta.

PostPosted: Sun 06. Aug 2006 20:14
by Bjarki
Eiginlega kominn með svarið:
http://member.rivernet.com.au/btaylor/B ... lInfo.html

Bara kaupa nýjan knastás (sami og er í öllum e36 bílunum o.fl.) og svo örugglega ódýrast að kaupa tölvukubb fyrir 318i á netinu og þá ætti maður að vera kominn með 118hp+ sem er betra.
Kannski e-r þrengin aftan við inngjafarspjaldið, eftir að kanna það.
En þetta er mjög einfalt og gefur mörg hestöfl.

PostPosted: Mon 07. Aug 2006 01:38
by bimmer
Bjarki er einn sá magnaðasti í bransanum - finnur svörin við eigin spurningum!!!!