Er að velta fyrir mér muninum á þessum tveimur vélum.
Veit að önnur er 105hp og hin er 118hp en þær eru með sama slagrými, þ.a.l. sömu blokk, sömu stimplar, sama hedd, sömu ventlar, sama soggreinin, sömu spíssarnir. Eina sem ég finn að er ekki það sama er knastásinn, svo er það nú sennilega tölvan.
Annars er þessi vél mjög svipuð m40 vélinni sem kom fyrst í e30! Nema m43tu er með tímakeðju og náttúrlega e-m bunka af endurbótum en bara 8 ventla.
Þá er það ekki fyrr en '01 sem kemur almennileg fjölventla 4cyl vél í e46.
Endilega ef ég er að segja e-a steypu leiðréttið og bætið í þetta.

