Bremsudiskar - OEM eða boraðir/slottaðir
Mig langar að vita hvort það sé eitthvað vit í því að fá sér boraða/slottaða bremsudiska þ.e.a.s. hvort þeir séu jafn góðir, betri eða verri ??
BMWKraftur spjallborð
https://www.bmwkraftur.is/spjall/
Dr. E31 wrote:Ég er með boraða og slottaða diska, ég verð að segja herf ekkert rosalega góða reynslu á þeim. Þetta er gott í að stoppan mann "feidar" miklu minna en orginal, EN þeir geta warpast við mikið álag eins og þeir hafa líklega gert hjá mér. Ég ætla að prófa bara slottaða næst.
ömmudriver wrote:Takk fyrir svörin strákar![]()
En ég var að pæla í að kaupa boraða diska sem eru framleiddir af/fyrir Bavarian Autosport og Pagid Sport bremsuklossaAny good??
bimmer wrote:ömmudriver wrote:Takk fyrir svörin strákar![]()
En ég var að pæla í að kaupa boraða diska sem eru framleiddir af/fyrir Bavarian Autosport og Pagid Sport bremsuklossaAny good??
Af hverju langar þig í boraða diska? Er það lookið eða virknin?
Fyrir stóran og þungan bíl eins og sjöu þá myndi ég frekar taka slottaða.
Diskar með götum eiga það til að springa út frá götunum við heavy hita- og mekanískt álag. Þá eru "boraðir" diskar verri en þeir sem eru steyptir með götum.
Það sem götin/slottin eiga að gera er það sama það er að fjarlægja gas sem myndast milli bremsupúðans og disksins við bremsun og þar með að stuðla að meiri núning milli þessara komponenta => betri virkni.
Ég skoðaði þetta slatta áður en ég fékk mér Brembo kittið undir minn bíl og ákvað að fá mér slottaða diska þar sem bíllinn er þungur og þar af leiðandi mikil átök.