Page 1 of 1

Hvernig virkar kúplingin ??

PostPosted: Wed 26. Jul 2006 18:36
by Einsii
Sælir, hvað er það sem ræður hversu þung og hversu ofarlega kúplingin er í blæjuni hjá mér.. Hún grípur nefnilega alveg neðst en ég er vanur að kúplingar í BMW séu frekar ofarlega..

Re: Hvernig virkar kúplingin ??

PostPosted: Wed 26. Jul 2006 18:42
by burgerking
Einsii wrote:Sælir, hvað er það sem ræður hversu þung og hversu ofarlega kúplingin er í blæjuni hjá mér.. Hún grípur nefnilega alveg neðst en ég er vanur að kúplingar í BMW séu frekar ofarlega..


Ég veit ekki mikið um þetta.. en kúplingin hjá mér (áður en hún fór) greip alveg neðst.. svo eftir að ég fékk nýja þá greip hún efst..

Annars veit ég ekki meir...

Re: Hvernig virkar kúplingin ??

PostPosted: Wed 26. Jul 2006 18:44
by Einsii
burgerking wrote:
Einsii wrote:Sælir, hvað er það sem ræður hversu þung og hversu ofarlega kúplingin er í blæjuni hjá mér.. Hún grípur nefnilega alveg neðst en ég er vanur að kúplingar í BMW séu frekar ofarlega..


Ég veit ekki mikið um þetta.. en kúplingin hjá mér (áður en hún fór) greip alveg neðst.. svo eftir að ég fékk nýja þá greip hún efst..

Annars veit ég ekki meir...

Já mig grunar það að hún sé orðin léleg.. Heyrði þetta einhverstaðar.

PostPosted: Wed 26. Jul 2006 18:51
by Hannsi
misjafnt

í mínum E30 325ix þá tók hún neðst en LANGT frá því að vera að fara hún greip betur en allt! snuðaði ekki einu sinni í drop clutch við 4500rpm-5500rpm

PostPosted: Wed 26. Jul 2006 19:02
by Bjarki
Getur verið léleg pressa eða þræll.
Semsagt vökvakerfi í BMW en ekki barki svo slit á disknum ætti ekki að skipta miklu máli.

PostPosted: Wed 26. Jul 2006 19:35
by Einsii
Hún grípur alveg pottþétt.. og gefur reyndar ekkert til kynna að hún sé að fara.. Er annars mikið mál að skipta um pressuna eða þræl og þarf það að vera dýrt ?