Page 1 of 2

Enn og aftur Angel eyes

PostPosted: Tue 25. Jul 2006 20:20
by jonthor
Ég er búinn að leita að þráðum um þetta, en fann ekkert sérstaklega gáfulegt. Hver er reynsla manna af:

Halo
Scheinwerfer
Inpro
Hella

Einhverjar skoðanir? Minnir að einhverjir hafi minnst á móðu í inpro ljósunum. Hvað er best í þessu?

PostPosted: Tue 25. Jul 2006 20:27
by Aron Andrew
Ég er með Depo, og var með eins fyrir áreksturinn, það kom alltaf móða í þau, en núna eftir að ég er kominn með nýju þá hefur ekki komið nein móða, spurning hvenar hún kemur :lol:

PostPosted: Tue 25. Jul 2006 22:01
by Danni
Ég er með Depo, og ég setti þau í, og eiðilagði þau held ég strax :( Var allavega að fikta í rafmagni inní bílnum (setja ljós í gírhnúann, og 2 vírar rákust saman og það komu neistar og núna kemur ekki 12v rafmagn í sígarettu kveikjarann og ekki heldur í hringina í ljósunum, sem ég bara fatta alls ekki þar sem það er ekki 1 sprungið öryggi, og sama þó að ég beintengi ljósin við 12v kemur ekki ljós á hringina. Var búinn að taka rafmagnið af geyminu í allt kvöld á meðan ég var að tengja ljósin og allt bara gleymdi því í þetta eina skipti og svona endaði það :(

PostPosted: Tue 25. Jul 2006 22:34
by Geirinn
Er ekki hægt að bora örlítið gat með ~3 mm bor til að losna við móðuleiðindi ? Kannski enginn góður staður til að gera þetta... og það má alls ekki leka þar inn, sbr. vélarþvottur etc... en veit ekki.

PostPosted: Wed 26. Jul 2006 00:45
by Aron Andrew
Geirinn wrote:Er ekki hægt að bora örlítið gat með ~3 mm bor til að losna við móðuleiðindi ? Kannski enginn góður staður til að gera þetta... og það má alls ekki leka þar inn, sbr. vélarþvottur etc... en veit ekki.


Alveg eins gott að opna bara aftaná ljósinu annað slagið og láta lofta út í góðu veðri, hitt er bara verra held ég td. ef það er slabb og annar viðbjóður eins og loðir oft við ísland :wink:

PostPosted: Wed 26. Jul 2006 15:16
by jonthor
En hafa menn enga skoðun á því hvað af þessu er best? Hella ljósin eru dýrust, framleiðir Hella ekki ljósin fyrir BMW orginal?

Ég hef áhuga á að skella mér á svona ljós en veit ekki alveg hvað er best að gera.

Verðið er svo mismunandi, hér er t.d. hægt að fá Halo ljós á ebay.com á 150$

http://cgi.ebay.com/ebaymotors/BMW-Ange ... 8482QQrdZ1

PostPosted: Wed 26. Jul 2006 16:20
by HPH
er hella ekki orginal? þá ætti hella að vera sama kvolití
held ég :?:

PostPosted: Wed 26. Jul 2006 16:22
by bjahja
Hella ljósin eru fugly imho

PostPosted: Wed 26. Jul 2006 17:02
by Aron Andrew
bjahja wrote:Hella ljósin eru fugly imho


sammála, asnalega litlir hringir og bara kjánaleg :roll:

PostPosted: Wed 26. Jul 2006 20:38
by moog
Ég er að fá svona ljós á minn núna bráðlega...

http://cgi.ebay.de/Fk-Angel-Eyes-BMW-3er-E36-Schwarz-mit-Klarglasblinkern_W0QQitemZ8066007859QQihZ019QQcategoryZ57310QQrdZ1QQcmdZViewItem

Image

Ath. stefnuljósin eru ekki áföst og þau fara ekki á bílinn....

Ljós

PostPosted: Thu 27. Jul 2006 00:17
by Hrannar
Ég veit til þess að Depo framleiðir ljós fyrir fjöldan af bílaframleiðundum.
En ekki fá þér ljós með króm botn, það er svo :gay: .
En ég veit að Jón Þór er smekk maður þannig að það á ekki að vera hætta á því.

PostPosted: Thu 27. Jul 2006 00:39
by iar
bjahja wrote:Hella ljósin eru fugly imho


Sammála því. Hringirnir ná saman að neðan en ekki að ofan og það gerir þau svoldið kjánaleg (ef ekki bara *kjánaleg* ;-) ). En aftur á móti þá ertu örugglega í góðum málum gæðalega séð með Hella.

Ég hlakka til að sjá ljósin sem Moog er að fara að fá, finnst þau líta ágætlega út á mynd, sérstaklega fyrst hægt er að sleppa stefnuljósunum, er ekki hrifinn þeim E39 wannabe's stefnuljósum sem ég hef séð á E36, þau virka alltaf svoldið "útskeif".

Það flottasta sem ég hef samt séð hingað til eru ljósin hjá Bjahja, svona mjóir hringir eru mjög flottir.

En aftur að gæðunum þá hef ég því miður enga reynslu af neinu af þessu en grunar að Hella sé top kvalitet þó það fugly. ;-)

Re: Ljós

PostPosted: Thu 27. Jul 2006 09:35
by jonthor
Hrannar wrote:Ég veit til þess að Depo framleiðir ljós fyrir fjöldan af bílaframleiðundum.
En ekki fá þér ljós með króm botn, það er svo :gay: .
En ég veit að Jón Þór er smekk maður þannig að það á ekki að vera hætta á því.


Hehe já rétt, eitt er öruggt í þessu, ég fæ mér svartan botn. Stock all teh way!

Hvaða tegund er Bjahja með?

Annars þá er ég búinn að vera að uppfæra smá, komin ný framrúða (er með Hreinnarframrúðumeðfullkomnumrúðuþurrkum fetish dauðans), nýr gírhnúður, nýr geislaspilari og ég var að setja original armpúða í bílinn sem ég keypti á Ebay. Hendi inn myndum af innanrýminu við tækifæri.

PostPosted: Thu 27. Jul 2006 09:45
by bjahja
Ég er með depo ljósker--------en ég veit ekki alveg hvaða angel eyes ég er með. Keypti þetta af gaur hérna heima og hann sagði mér aldrei hvaðan hann fékk þetta :?
Ég hef nefnilega líka séð myndir af DEPO angel eyes sem eru með mun þykkari hringum og svona

PostPosted: Thu 27. Jul 2006 12:59
by jonthor
Nú eiga hér nokkrir kraftsmeðlimir inpro ljós. Heyrt mikið um móðuvandamál með þau. Hafa menn leyst þetta?