Page 1 of 2

Vill ekki í gang...

PostPosted: Sat 22. Jul 2006 07:42
by Twincam
Ég veit að þetta er ekki BMW sem ég ætla að spyrja um... en ég bara nenni ekki að gera það á Live2Cruize og þurfa að ignorea 30 pósta frá "mr.knowsitall" aparössum. :roll:

En allavega, ég er með Polo sem vill bara ekki í gang hjá mér, ég veit að þetta er eitthvað einfalt sem ég er bara ekki að kveikja á perunni með.

Ég er búinn að setja í hann ný kerti, nýtt kveikjulok og nýjan kveikjuhamar. Hann startar og snýr vélinni, en hann bara tekur ekkert við sér. Einhverjar hugmyndir hvað gæti verið málið?

Á eftir að skipta um háspennukeflið og prófa að setja annað í sem ég á og veit að er í lagi. Svo og kveikjuþræði líka. En hvað mynduð þið halda að gæti verið helsta orsökin fyrir þessu? :?

PostPosted: Sat 22. Jul 2006 09:13
by Danni
Fær hann bensín? Ónýt bensíndæla eða stífluð bensínsía? Ef það er ekki málið þá er eitt annað, frekar langsótt reyndar, sem þú gætir prófað; taka rafmagnið af bílnum í svona 30-60 mín og þá á tölvan að resetta sig. Virkaði allavega á gamla Oeplnum hans pabba, einn daginn neitaði hanní gang og einhverstaðar hafði hann heyrt að þetta gæti virkað, svo hann bara ákvað að prófa, gat allavega ekki haft slæm áhrif. En bíllinn rauk í gang og var til friðs alveg eftir það.

PostPosted: Sat 22. Jul 2006 15:01
by Hannsi
er relay fyrir bensín dæluna? tékkaður ef svo á því.

PostPosted: Sat 22. Jul 2006 15:32
by Jónki 320i ´84
Fær hann bensín?
Fær hann neista?
Fær hann loft?

Þetta er það þrennt sem þú þarft að ganga úr skugga um hvort hann sé að fá :wink:

Getur prófað að taka bensínleiðsluna sem kemur inná mótor af og starta og sjá hvort það bunar útur henni.
Svo tekuru eitt kerti úr og prófar það í kertaþræðinum með því að stinga því í kertaþráð, setja kertið einhverstaðar í jörð og starta og sjá hvort það komi neisti. passaðu bara að koma ekki við bílinn neins staðar því þá færð þú straum :lol:
svo bara athuga hvort það sé einhver stífla á leiðinni inná mótor fyrir loftið :wink:

Þetta er svona basic hlutirnir sem þú þarft að tjekka, ef hann fær nóg af öllu þá er eitthvað meira að :wink:

PostPosted: Sat 22. Jul 2006 18:42
by Tommi Camaro
þetta er Wv polo
hef hann er með svona stálhetum yfir kertaþræðinn þá duga þeir bara x marga km. og svo eru þeir onýtir
þetta hljómar eins og kertaþræðinnir hjá þér, þeir eru not bene drasl í Wv

PostPosted: Sat 22. Jul 2006 19:02
by Twincam
Jónki 320i ´84 wrote:Fær hann bensín?
Fær hann neista?
Fær hann loft?

Þetta er það þrennt sem þú þarft að ganga úr skugga um hvort hann sé að fá :wink:

Getur prófað að taka bensínleiðsluna sem kemur inná mótor af og starta og sjá hvort það bunar útur henni.
Svo tekuru eitt kerti úr og prófar það í kertaþræðinum með því að stinga því í kertaþráð, setja kertið einhverstaðar í jörð og starta og sjá hvort það komi neisti. passaðu bara að koma ekki við bílinn neins staðar því þá færð þú straum :lol:
svo bara athuga hvort það sé einhver stífla á leiðinni inná mótor fyrir loftið :wink:

Þetta er svona basic hlutirnir sem þú þarft að tjekka, ef hann fær nóg af öllu þá er eitthvað meira að :wink:

Ég er nú ekki alveg fæddur í gær... auðvitað var ég búinn að athuga hvort hann fengi bensín og loft.. eina sem ég hef ekki getað athugað er hvort hann fái neista þar sem mér er lífsins ómögulegt að geta stússast í húddinu á sama tíma og ég sit inni í bíl að starta... :lol:

En það kæmi mér samt ekkert á óvart þó þetta væri eins og Tommi er að tala um... bara ónýtir kertaþræðir... :? tími bara ekki að eyða meira í þennan bíl :oops:

PostPosted: Sat 22. Jul 2006 20:14
by Tommi Camaro
Twincam wrote:

skil þig Alveg en þetta er bara mjög classic i eldri Wv þráðurinn skilar næstanum ef þú prófar hann en þegar þú setur á hann þá leiðist hann ut

PostPosted: Sun 23. Jul 2006 06:41
by Twincam
Tommi Camaro wrote:
Twincam wrote:En það kæmi mér samt ekkert á óvart þó þetta væri eins og Tommi er að tala um... bara ónýtir kertaþræðir... :? tími bara ekki að eyða meira í þennan bíl :oops:

skil þig Alveg en þetta er bara mjög classic i eldri Wv þráðurinn skilar næstanum ef þú prófar hann en þegar þú setur á hann þá leiðist hann ut

Jámms.. á annan mótor inni í skúr, þarf að prófa að setja þræðina af honum á þennan og athuga hvað gerist... eru svona spes VW þræðir ekki tussudýrir? :?
Er í lagi að nota þræði sem eru ekki með þessum járnhulsum þarna utan um? Eða er þetta hitaskermur eða eitthvað þannig drasl? :roll:

PostPosted: Sun 23. Jul 2006 16:56
by D@BBI
Er nokkuð mál að tengja bílinn við tölvu og fá upplýsingar hvort eitthverjir skynjarar eru farnir? hjálpaði mér þegar ég var á Wv, og kostaði eitthvað um 7 kallinn minnir mig

PostPosted: Mon 24. Jul 2006 00:15
by HPH
ég nenni ekki að lesa allan þráðinn en ég ætla samt að koma með eitt ráð og það er::: ER NÓG BENSÍN Á BÍLNUM??? ég hef brent mig á þessu og það er bara vandræðalegt :oops: :lol:

PostPosted: Mon 24. Jul 2006 00:31
by Hannsi
Þetta hlítur að vera komið í lag víst að hann er kominn á ferðinna :)

PostPosted: Mon 24. Jul 2006 00:50
by Lindemann
ég sé að menn hér virðast mikið hafa umgengist WagenVolks bíla.....vitið þið hvar maður getur séð svoleiðis? væri alveg til í að skoða

PostPosted: Mon 24. Jul 2006 00:57
by siggir
Twincam wrote:
Tommi Camaro wrote:
Twincam wrote:En það kæmi mér samt ekkert á óvart þó þetta væri eins og Tommi er að tala um... bara ónýtir kertaþræðir... :? tími bara ekki að eyða meira í þennan bíl :oops:

skil þig Alveg en þetta er bara mjög classic i eldri Wv þráðurinn skilar næstanum ef þú prófar hann en þegar þú setur á hann þá leiðist hann ut

Jámms.. á annan mótor inni í skúr, þarf að prófa að setja þræðina af honum á þennan og athuga hvað gerist... eru svona spes VW þræðir ekki tussudýrir? :?
Er í lagi að nota þræði sem eru ekki með þessum járnhulsum þarna utan um? Eða er þetta hitaskermur eða eitthvað þannig drasl? :roll:

Fáðu bara rafmagnsmæli og mældu þræðina. Þeir eiga að hafa einhverja ákveðna leiðni og ef hún er ekki rétt þá eru þræðirnir ónýtir.

PostPosted: Mon 24. Jul 2006 00:59
by D@BBI
Eða það :D WagenVolks -Volkswagen

PostPosted: Mon 24. Jul 2006 07:14
by Twincam
Hannsi wrote:Þetta hlítur að vera komið í lag víst að hann er kominn á ferðinna :)
Heldur þú að þú myndir sjá comment frá mér um Herra Grænan að ég tímdi ekki að eyða meiru í hann? :shock:

Ég er að tala um Frú Bleiku núna... hún er BARA tussa... :lol: