Page 1 of 1

Byrjandi að spá í bíl er þetta (Mynd) vesen?

PostPosted: Wed 19. Jul 2006 12:37
by BMWBEGINNER
Ég var að skoða 540 bíl með kaup í huga, en ég varð smá stressaður þegar ég opnaði húddið. Meðfram vélinni var dökk rák sem líktist olíu, ég læt mynd fylgja.

Er þetta merki um að heddpakkning sé að fara eða eitthvað verra. ?


Image

PostPosted: Wed 19. Jul 2006 13:48
by Hannsi
pakkningar á ventlalokinni líklega hringirnir sem eru farnir heddpakkninginn er neðar ;)

PostPosted: Wed 19. Jul 2006 15:03
by saemi
Þetta er algengt á 540. Þetta er ventlalokspakkningin, frekar einfalt að skipta um. Ekkert til að hræðast.

PostPosted: Wed 19. Jul 2006 15:09
by BMWBEGINNER
Ok, þannig. Takk kærlega fyrir þetta.
Er nefnilega ekki mikill svona vélakall og þekki þetta lítið, en þetta leit þá verr út heldur en þetta raunverulega er.

Getur einhver skotið á kostnað við viðgerð og hvort þetta er eittthvað sem liggur á að fixa ?

PostPosted: Wed 19. Jul 2006 16:03
by gstuning
BMWBEGINNER wrote:Ok, þannig. Takk kærlega fyrir þetta.
Er nefnilega ekki mikill svona vélakall og þekki þetta lítið, en þetta leit þá verr út heldur en þetta raunverulega er.

Getur einhver skotið á kostnað við viðgerð og hvort þetta er eittthvað sem liggur á að fixa ?


þessar ventlaloks pakkningar eru gúmmí og kosta klink,
þú getur skipt um þetta sjálfur þótt þú sért ekki vélarkall

PostPosted: Thu 20. Jul 2006 09:20
by arnib
Ég hef ekki flett upp neinum verðum eða slíku, en þetta ætti að kosta lítið að laga.

Svo þú fáir hugmynd um hvað þig vantar fann ég þetta á ebaymotors.de
ventlalokspakkning.

Þessi kostar 21 EUR.

Ég er ekki 100% viss um að þetta tiltekna stykki passi í þennan bíl - en þetta er verðhugmynd.