Page 1 of 1

Innflutningur á Ódýrum bílum

PostPosted: Thu 13. Jul 2006 21:37
by Flash
Ég var að hugsa að ef maður myndi flytja inn bíl frá þýskalandi sem myndi kosta um 7000 Evrur og fá vaskinn endurgreiddann og svona er það þá rétta að hann væri kominn hingað heim á um 1.2 eða er þetta einhver misreikningur í Bmw innflutnings reiknivélinni?

Hefur einhver prufað að kaupa svona ódýrann bíl úti?

Hvað ætti mar að passa sig á!?

PostPosted: Thu 13. Jul 2006 22:36
by Alpina
Þetta er nærri lagi hjá þér .....

reiknaðu með 1500 € kostnaði vegna þóknun eða annað

PostPosted: Fri 14. Jul 2006 11:09
by jonthor
Það bara borgar sig varla lengur að flytja inn bíl frá evrópu á meðan krónan er svona veik og bílamarkaðurinn hérna svona crowded.

Mun líklegra að finna bíl á góðu verði hér, sérstaklega eins og ástandið er í dag. Ekki ólíklegt að enn fleiri bílar flæði inn á bílasölurnar í haust.

PostPosted: Fri 14. Jul 2006 11:14
by jens
Það er sennilega rétt, en ég er að leita að Toy RAV og er að lenda í því að fá bara ekki nógu gott eintak þó ég sé með peningana í rassvasanum. Ef keyptur er bíll úti þá finst manni bílarnir vera heillegri þar en kanski er það vitleisa. Þannig að ég myndi skoða bíla úti þó þeir séu á sama verði komnir hingað.