Page 1 of 1

Rúðupissslöngur með þremur essum

PostPosted: Tue 04. Jul 2006 01:47
by mattiorn
hvað mega þessar slöngur vera breiðar? er að lenda í því að rúðupissið drífur ekki upp á rúðuna hjá mér... ætla bara að skipta um slöngur, held að þessar sem ég er með séu ekki orginal...
er ekki best að panta þetta orginal eða duga bara einhverjar slöngur í Bílanaust eða eitthvað? :P

PostPosted: Tue 04. Jul 2006 12:29
by Stefan325i
það er 1 slanga frá forðabúrinu í deilir sem skiptir því svo í sithvorn spíssan, þessi deilir á það til að stiflast.

Þú sérð hann efst inní húddinu þínu fyrir miðju.


Ég var með e30 bíl einusinn sem rúðupissið var alls ekki að virka, ég prufaði að bora þennan deilir út, boraði með 4mm bor alveg í gegnum hann og svo boraði ég líka inntakið á deilinum niður að hinu gatinum og rúðupissið lagaðist eftir þetta.

PostPosted: Tue 04. Jul 2006 14:02
by mattiorn
ég skipti um allar slöngur og fékk nýtt T, en vandamálið er enn til staðar..
spurning hvort að mótorinn sé bara slappur? pissið drífur ekki upp á rúðuna
það samt heyrist alveg í honum... ætli það sé ekki bara vandamálið?

PostPosted: Tue 04. Jul 2006 15:08
by Steinieini
Ertu búin að athuga hausana sjálfa ? var að skoða þetta hjá mér og ég þarf að fá nýjann haus öðru megin. Hann hleypti engu í gegn um sig... samt ekki stíflaður af drullu, ég náði að fá eithvað í gegn en ekki nóg.. :hmm:

Kaupa bara nýtt í BogL :wink:

PostPosted: Tue 04. Jul 2006 15:37
by finnbogi
já gæti verið spíssarnir ég skipti um einn hjá mér því hann var stíflaður

kostaði mig eikkun 400kr í bogl

PostPosted: Tue 04. Jul 2006 15:58
by íbbi_
það hefur stundum dugað hjá mér að pota inní þá með nál