Page 1 of 4

gangtruflanir

PostPosted: Fri 30. Jun 2006 01:22
by Kristján Einar
sælir félagar, ég var að keyra heim áðan og þá byrjaði ég að heyra smávegis "bank" alltaf, kom með svona hálfrar sekúndu millibili þegar bíllinn var undir gjöf, allt í góðu, hverfur síðan þegar hann er ekki undir gjöf.
Síðan er ég kominn á gatnamót og þá drepur hann á sér, ég starta honum aftur og hann á svoldið erfitt með það, soldið eins og hann væri rafmagnslaus. Síðan er ég að prófa þetta og tek hann úr gír, þá er hægagangurinn farinn í rugl.

vona að það sé einhver séns að skilja eitthvað að því sem ég skrifaði, veit einhver hvað þetta getur verið :/ ?

þetta er í 318is ´93

Re: gangtruflanir

PostPosted: Fri 30. Jun 2006 09:52
by Kristján Einar
dettur engum neitt í hug ... ég er í talsverðum vandræðum atm útaf þessu

PostPosted: Fri 30. Jun 2006 10:04
by ValliFudd
síðast þegar minn hægagangur var í rugli, var það á meðan ég var að bæta á hann olíu.. hann fór í steik á meðan olíulokið var ekki á... fékk þvílíkt sjokk fyrst hehe.. en þá var það bara vegna skorts á þrýstingi :lol: sem betur fer! :)

og þarsíðast.. þá voru nú bara 2 stimpilstangir komnar í gegnum blokkina og vélafestingar brotnar hehe... ég var ekki búinn að skoða hvað gerðist.. prófaði að setja í gang.. og drap strax á honum því hann var enganvegin að ganga eins og hann átti að ganga... :lol:
það var e36 318 :)

En ég er nokkuð viss um að hvortugt á við þig, og POTTÞÉTT ekki seinna atriðið.. :lol: Samt spurning með olíulokið... you never know....:) ég veit ekki neitt sem skiptir máli um bílvélar :) annað en að þær bila.... en olíulokið er það sem ég lenti í síðast..:) og það var bara á meðan ég var að bæta á hann....:)

EDIT: vá margir broskallar hehe

PostPosted: Fri 30. Jun 2006 10:22
by íbbi_
já merkilegt hvað þeir eru viðkvæmir fyrir sogi, ég fékk einu sinni 318 í hendurnar sem gékk ekki nógu vel.. tók eftir því að ventlalokpakningsin var ónýt og setti aðra heila, þá gékk hann eins og klukka

PostPosted: Fri 30. Jun 2006 10:45
by Kristján Einar
ég ætla að checka líka bara olíumagnið á vélinni. en einhverjar fleiri hugmyndir?

PostPosted: Fri 30. Jun 2006 12:21
by Kristján Einar
ég fékk afa til að kíkja aðeins´a hann með mér, ég bætti við slatta af olíu þannig að hann var alveg fullur og þá lagaðist hægagangurinn.. en bankið er ennþá... afi vill meina að það sé eitthvað farið í mótornum, ekki í hægagangi en um leið og hann fer yfir svona 1500 snúninga.. getur einhver komið með hugmyndir? hef ekki efni á að fara í einhverjar major viðgerðir á verkstæði atm... :(

PostPosted: Fri 30. Jun 2006 12:23
by elli
ég á M42 hann var með leiðinlegann hægagang en það var vegna þess að hann dró falskt loft hjá throtle boddyinu og þar í kring. Prófaðu að úða bremsuhreinsi á pakkningarsamskeitin sem eru þar og ef hann tekur vel við sér þá er ekki ókíklegt að pappa pakkningin hafi nuddast í sundur þar. Svoleiðis var það hjá mér svo var líka gat á 90° túðuni sem er á milli throttle boddy og loftinntaks.

kv.
elli

PostPosted: Fri 30. Jun 2006 12:26
by Kristján Einar
málið er að hægagangurinn er farinn.. en ég er meira hræddur við þetta bank :/

PostPosted: Fri 30. Jun 2006 17:30
by íbbi_
lagaðist bankið við að setja olíu á bílin, kemur bankið inn þegar mótorinn er kominn á snúning?

hljómar eins og úrbræddur mótor :x búinn að lenda 3svar í því

PostPosted: Fri 30. Jun 2006 17:45
by Kristján Einar
íbbi_ wrote:lagaðist bankið við að setja olíu á bílin, kemur bankið inn þegar mótorinn er kominn á snúning?

hljómar eins og úrbræddur mótor :x búinn að lenda 3svar í því


akkurat það sem afi sagði, og nei bankið lagaðist ekki við að setja meiri olíu

edit: já það kemur bara þegar mótorinn er kominn á snúning

PostPosted: Fri 30. Jun 2006 20:22
by stebbihall
Mikið rétt,Hljómar skuggalega líkt því að mótorinn sé úrbræddur #-o

PostPosted: Fri 30. Jun 2006 21:00
by arnibjorn
:(

PostPosted: Fri 30. Jun 2006 21:25
by Kristján Einar
úff, afi sagði samt að einhver vatnslás eða eitthvað álíka undir, eða einhver viftulás, man ekki hvað hann sagði gæti verið fastur, eitthvað til í því..

annars er þetta frekar súrt

PostPosted: Fri 30. Jun 2006 23:41
by D@BBI
En getur þetta ekki verið tikk í undirlyftunum :?:

PostPosted: Sat 01. Jul 2006 17:17
by Kristján Einar
D@BBI wrote:En getur þetta ekki verið tikk í undirlyftunum :?:


það er akkurat orðið sem ég var að leita eftir ekki lás :)