Page 1 of 1

BMW 330, á það til að drepa á sér.

PostPosted: Thu 01. Jun 2006 20:55
by THT
ER með BMW 330ix, módelár 2002. Oft þarf að snúa lyklinum nokkrum sinnum til að hann fari í gang, sömuleiðis á hann það til að drepa á sér á mjög lágum snúningi. Kannast e-r við svona vandamál eða getur e-r ímyndað sér hvað gæti verið að?

Ég amk geri ráð fyrir að þetta sé ekki eðlilegt.

Svör væru vel þegin :)

PostPosted: Sun 04. Jun 2006 17:55
by Stulloz
Bílinn minn drap um daginn á sér þegar ég var á leið löturhægt í gegnum hringtorg. Aldrei lent í því áður og ekki aftur eftir það.
Nægt benzín var á tankinum.
Ég gerði strax ráð fyrir að sjálfvirka innsogið eða eitthvað hafi eitthvað klikkað.

PostPosted: Mon 05. Jun 2006 15:26
by .
ég var að keyra í gær og negldi niður og bíllinn drap á sér

PostPosted: Wed 07. Jun 2006 00:30
by IceDev
Ég er að lenda í þessu sama og er með e39 523

Það sem ég hef fundið á bimmerforums er:


o2 skynjari
Cam position skynjari
kerti ( efast um það)

Er cam position skynjari einhversskonar sveifarásstaðsetningarskynjari og ef svo er veit einhver hvað hann kostar?

Fann út að o2 skynjarar kostuðu einhvern 13 þús í TB


Þá eru stóru spurningarnar

Kann einhver að skipta um þetta eða veit um DIY lista fyrir svona aðgerðir?


Einnig fæ ég ekkert viðvörunarljós við þessum kvilla

Með kveðju
Óskar

PostPosted: Wed 07. Jun 2006 10:09
by THT
Talaði við Tækniþjónustu bifreiða, þeir töldu líklegast að knastásskynjari væri farinn. Myndi halda að það væri þetta Cam position sensor (líklegast). Kostar víst um 13-15þús bara skynjarinn.