bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Föst hurð í E36 https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=15782 |
Page 1 of 1 |
Author: | _Halli_ [ Sun 28. May 2006 21:21 ] |
Post subject: | Föst hurð í E36 |
Sælir ágætu herramenn ![]() Ég er í þeim vandræðum að ég er fastur í bílnum mínum! ![]() Ég er reyndar svo úrræðagóður að ég get ferðast um farþegahurðina og þannig komst ég hingað á Kraftinn til að leita ráða hjá ykkur sérfræðingunum. Þannig er mál með vexti að þegar ég toga í handföngin bæði að innan og utan á bílstjórahurðinni þá gerist ekki neitt. Þrátt fyrir að allir pinnar virðist vera tengdir þá grípa handföngin aldrei í. Ég náði að troða hendinni á mér eitthvað þarna inn og fann að pinninn grípur alveg klárlega í og togar en læsingin sjálf haggast ekki. Er einhver annar pinni þarna fyrir innan sem togar upp læsinguna eða hvað? Bjarki hélt að þetta væri einhver stirðleiki í læsingunni sjálfri og hann úðaði WD-40 þarna inn og ekkert gerðist. Ég vona að einhver geti hjálpað mér í þessu leiðinlega máli ![]() Ef þetta er ekki nógu skýr útskýring hjá mér, endilega spyrjið og ég reyni að skýra þetta betur út fyrir ykkur! PS. Þegar ég er að tala um læsinguna þá er það gaurinn sem grípur utan um festinguna í hurðarfalsinu. |
Author: | Aron Andrew [ Sun 28. May 2006 23:56 ] |
Post subject: | |
Þetta hefur komið fyrir hjá mér en þá gekk aðferðin sem Bjarki beitti. |
Author: | _Halli_ [ Mon 29. May 2006 03:22 ] |
Post subject: | |
Aron Andrew wrote: Þetta hefur komið fyrir hjá mér en þá gekk aðferðin sem Bjarki beitti.
Ok, ég prufa þá bara að úða hressilega á þetta aftur á morgun og sé hvað gerist. |
Author: | _Halli_ [ Mon 29. May 2006 20:28 ] |
Post subject: | |
_Halli_ wrote: Aron Andrew wrote: Þetta hefur komið fyrir hjá mér en þá gekk aðferðin sem Bjarki beitti. Ok, ég prufa þá bara að úða hressilega á þetta aftur á morgun og sé hvað gerist. Jæja, þetta bar engan árangur en bíllinn ilmar hressilega af WD-40 ![]() Dettur einhverjum annað ráð í hug? Ég er orðinn alveg uppiskroppa með hugmyndir! ![]() |
Author: | Geirinn [ Mon 29. May 2006 20:40 ] |
Post subject: | |
_Halli_ wrote: _Halli_ wrote: Aron Andrew wrote: Þetta hefur komið fyrir hjá mér en þá gekk aðferðin sem Bjarki beitti. Ok, ég prufa þá bara að úða hressilega á þetta aftur á morgun og sé hvað gerist. Jæja, þetta bar engan árangur en bíllinn ilmar hressilega af WD-40 ![]() Dettur einhverjum annað ráð í hug? Ég er orðinn alveg uppiskroppa með hugmyndir! ![]() Ég vil benda þér á að WD-40 er eftir minni bestu vitund bara gott í að losa hluti sem standa á sér eða eru riðgaðir, það þurrkar hlutinn þegar það þornar og því er alvöru feiti betri til langs tíma. ![]() |
Author: | asgeirholm [ Mon 29. May 2006 20:54 ] |
Post subject: | |
ertu búinn að prufa að læsa bílnum og opna hann aftur með lyklinum þar sem að það er þjófavörn í E-36 sem gerir það að þegar að bílnum er læst með lykli þá er ekki hægt að opna hann að innan, það gætti verið að þjófavörnin sé eitthvað biluð. En eins og Geirinn sagði þá á ekki að nota Wd-40 til að smyrja, heldur eitthvað annað!! |
Author: | _Halli_ [ Mon 29. May 2006 21:32 ] |
Post subject: | |
Geirinn wrote: Ég vil benda þér á að WD-40 er eftir minni bestu vitund bara gott í að losa hluti sem standa á sér eða eru riðgaðir, það þurrkar hlutinn þegar það þornar og því er alvöru feiti betri til langs tíma. ![]() Jámm, og þetta virðist standa eitthvað á sér! ![]() asgeirholm wrote: ertu búinn að prufa að læsa bílnum og opna hann aftur með lyklinum þar sem að það er þjófavörn í E-36 sem gerir það að þegar að bílnum er læst með lykli þá er ekki hægt að opna hann að innan, það gætti verið að þjófavörnin sé eitthvað biluð.
Já ég er búinn að prufa það, og var einmitt að spá hvort þessi lás væri eitthvað í ruglinu þar sem þessi þjófavörn virkar ekki lengur. Það virkar að læsa bílnum með lyklinum og með pinnanum að innan, það virkar einnig að opna hann með lyklinum og pinnanum, og bíllinn fer úr lás þegar maður tekur í handfangið að innan. Ég held að ég athugi bara B&L menn á morgun, hálf asnalegt og leiðinlegt að þurfa alltaf að klifra út um allan bíl til að setjast undir stýri! ![]() Takk fyrir hjálpina! |
Author: | Bjarki [ Mon 29. May 2006 23:12 ] |
Post subject: | |
Pælingin með að úða wd40 í þetta var náttúrlega ef e-r gormur eða fjöður væri alveg föst þá að úða þessu á og banka í þetta til að fá hana til að losna. Bara til að opna hurðina, eins og þetta er núna þá er svo erfitt að komast að þessu. Þegar hurðin opnast þá þarf náttúrlega að taka draslið úr finna hvað veldur og smyrja með feiti, annars myndi allt frostna næsta vetur. Halli kíktu á mig á morgun áður en þú ferð upp í B&L, þarft líka pottþétt að panta tíma þar og færð hann varla bara strax. Vonast svo til að geta póstað því á morgun hvernig á að laga svona ![]() Deadlock'ið virkar ekki, deadlock'ið er nú samt ekki þjófavörn. Bara erfiðara fyrir þjófa að fara inn í bílinn og út úr honum aftur, líkt og lásar bara betra. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |