Sælir,
Ég er á BMW 320d 2003 sem ég keypti í janúar. Þegar ég starta kemur km fjöldi í næstu olíuskipti. Núna stendur að það séu 50 km í olíuskipti og þegar ég drap á bílnum áðan logaði olíuljósið í stutta stund og það var APPELSÍNUGULT ekki rautt eins og það er þegar svissað er á bílinn fyrir start. Síðan tók ég lyklana úr, setti þá aftur í, startaði og ekkert ljós! Síðan þegar ég er drap á kom appelsínugult olíuljós aftur.
Eins og þið vitið kannski þá merkir RAUTT ljós í mælaborði WARNING
og appelsínugult CAUTION. Í manualnum með bílnum er talað um að stoppa strax við WARNING ljós en í lagi að aka áfram með Caution ljós(gaumljós).
Er app.gula ljósið ekki bara að gefa til kynna að olíuskipti nálgast? eða vitið þið betur?

