bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Navigation CD? https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=15426 |
Page 1 of 1 |
Author: | ///Matti [ Sun 07. May 2006 17:19 ] |
Post subject: | Navigation CD? |
Sælir. Hvar get ég fengið Navigation CD af Íslandi?? Langar að geta notað þetta víst þetta er þarna ti staðar.. ![]() |
Author: | Saxi [ Sun 07. May 2006 21:29 ] |
Post subject: | Re: Navigation CD? |
///Matti wrote: Sælir.
Hvar get ég fengið Navigation CD af Íslandi?? Langar að geta notað þetta víst þetta er þarna ti staðar.. ![]() Var að leita dyrum og dyngjum að þessu um daginn fyrir hann föður minn en fann hvergi. Þau kort sem eru til af íslandi eru einungis fyrir Garmin kerfið og eitthvað annað kerfi sem ég man ekki hvað heitir í augnablikinu. Ekkert fyrir BMW ![]() Hafði síðan samband við IGN France sem bjó diskinn til sem var í bílnum og þeir vildu ekkert kannast við íslenskt kort í þessi tæki ![]() Saxi |
Author: | ///Matti [ Sun 07. May 2006 22:24 ] |
Post subject: | |
ok,Talaðirðu við AmgAukaraf? |
Author: | Saxi [ Mon 08. May 2006 21:58 ] |
Post subject: | |
///Matti wrote: ok,Talaðirðu við AmgAukaraf?
Nei gerði það ekki, ég kíkti bara á síðuna þeirra. Sýndist þeir ekki eiga neitt götukort yfir ísland. Þú póstar kannski hérna inn ef þú finnur eitthvað sem gengur? Saxi |
Author: | Geirinn [ Tue 09. May 2006 02:17 ] |
Post subject: | |
Var í leigubíl um daginn sem var með kortaapparat. Spurðist aðeins fyrir um það og hann sagði að þetta væri sett í kerfið með einhverjum minniskubb. Mig minnir að hann hafi sagt að þetta væri fyrirtæki úti á Granda, Fiskislóð eða álíka. Man samt lítið eftir þessu því ég var frekar fullur ![]() |
Author: | _Halli_ [ Tue 09. May 2006 04:26 ] |
Post subject: | |
Geirinn wrote: Mig minnir að hann hafi sagt að þetta væri fyrirtæki úti á Granda, Fiskislóð eða álíka.
Þetta fyrirtæki myndi vera R. Sigmundsson, þeir hljóta að geta möndlað eitthvað, miklir GPS menn þar á ferð. http://www.rs.is/ |
Author: | Svessi [ Tue 09. May 2006 12:47 ] |
Post subject: | |
Ég keypti mér Tomtom 700 tæki í UK í fyrra, mjög gott tæki notabene, og það er með alla vestur-evrópu nema ísland. Virkaði vel fyrir mig í UK. Og svo fór brósi reyndar á road-trip um evrópu núna í mars síðastliðnum á sínum Toyota Corolla 1.6 Gli ´93 ekinn 300.000 + km ![]() Fór með Norrænu til Danmerkur, fór svo til þýskalands, sviss, ítalía, spánn, frakkland, aftur til þýskalands og svo til danmerkur og aftur heim með norrænu og hann sagði að tækið hefði leitt þá alla leið. Ég fór til þeirra í RS og spurði hvort þeir ættu íslandskort fyrir þetta tæki og kallinn sagði að ég hefði gert vitleysu með að kaupa vittlaust tæki!!!!! Fyrirgefðu, eru þeir ekki með bara vitlaust tæki í umboðs-sölu. Allavega, hann vissi ekki hvort það myndi virka að setja kortið þeirra í mitt tæki og að auki kostar þetta kort 16.900 kr hjá þeim. Sem mér persónulega finnst frekar mikið, sérstaklega þar sem varla er hægt að villast hérna á íslandi, hefði bara verið gaman að eiga þetta. En annars, hefur einhver prófað að setja þetta kort í annað en Garmin tæki? |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |