Page 1 of 1

Þrýstingur í 17'' dekkjum

PostPosted: Thu 27. Apr 2006 23:24
by D@BBI
Hve mikinn Þrýsting er best að hafa í dekkjunum,Hann ver i 27 Pundum

PostPosted: Thu 27. Apr 2006 23:36
by Geirinn
Sést yfirleitt í falsinu á bílstjórahurðinni.

Annars eru menn að setja um 25-27 í blöðrur og 30-35 í low profile eftir minni bestu vitund.

PostPosted: Thu 27. Apr 2006 23:51
by bjahja
17" er sirka 35............fer eftir stærð á dekkjum og þyngd á bíl og svona

PostPosted: Thu 27. Apr 2006 23:52
by Geirinn
Kannski hægt að bæta því við að ef að þú hringir á einhvað af betri hjólbarðaverkstæðum þá ættu þeir að geta gefið þér vitræn svör.

PostPosted: Thu 27. Apr 2006 23:55
by bjahja
Geirinn wrote:Kannski hægt að bæta því við að ef að þú hringir á einhvað af betri hjólbarðaverkstæðum þá ættu þeir að geta gefið þér vitræn svör.

Skemmtilegt að segja frá því að síðast þegar ég lét setja dekk undir hjá mér var í fyrrasumar rétt áður en ég fór á bíladaga.
Fannst dekkin alveg óvenju hörð og leiðinleg á leiðinni til ak city. Stoppaði loksins í borgarfirði og ákvað að tjakka á þrýstingum, veit ekki hvað var mikið í þeim af því mælirinn minn náði bara í 50 :shock: :shock:
Það geta verið algjörlega clueless gaurar á dekkjaverkstæðum.

PostPosted: Thu 27. Apr 2006 23:58
by Geirinn
bjahja wrote:

Já ég hafði vaðið aðeins fyrir neðan mig þarna því ég veit að það eru oft gaurar að vinna á þessum stöðum sem vita ekki shit í sinn haus - sem og annar staðar.

Mér finnst þeir alltaf setja frekar lítið í mín dekk þegar ég fer á þessa staði svo ég bæti yfirleitt í sjálfur.

En eitt er víst, það er ekkert 'standard' í þessum málum.

PostPosted: Fri 28. Apr 2006 00:04
by Svezel
það fer náttúrlega eftir því hvað bíllinn er þungur og hversu breið dekkin eru

2tonna bíll á 235/45 17 þarf mun meiri þrýsting en 1500kg bíll á sömu dekkjum

bmw eru svo sniðugir að setja þessar upplýsingar í falsið bílstjóramegin og svo er bara að prófa sig áfram út frá þeim upplýsingum.

PostPosted: Fri 28. Apr 2006 10:35
by grettir
bjahja wrote:
Geirinn wrote:Kannski hægt að bæta því við að ef að þú hringir á einhvað af betri hjólbarðaverkstæðum þá ættu þeir að geta gefið þér vitræn svör.

Skemmtilegt að segja frá því að síðast þegar ég lét setja dekk undir hjá mér var í fyrrasumar rétt áður en ég fór á bíladaga.
Fannst dekkin alveg óvenju hörð og leiðinleg á leiðinni til ak city. Stoppaði loksins í borgarfirði og ákvað að tjakka á þrýstingum, veit ekki hvað var mikið í þeim af því mælirinn minn náði bara í 50 :shock: :shock:
Það geta verið algjörlega clueless gaurar á dekkjaverkstæðum.

Haha, ójá.. fór einu sinni að versla mér vetrardekk og lét setja þau undir á staðnum. Þegar þeir voru að taka saman sumardekkin fundust bara þrjú og gaurinn spyr: Voru þau bara þrjú?
Ég vissi ekki alveg hvort ég átti að hlæja eða gráta og sagði: Nei, þau voru nú fjögur þegar ég kom keyrandi hérna inn

PostPosted: Fri 28. Apr 2006 17:45
by ValliFudd
ég kíkti á essó áðan að prófa þessar flottu græjur hjá þeim... er með 15 tommur undir og eitt 14 tommu varadekk hehe.. en já.. samkvæmt miðanum í bílnum átti að vera 29 í 15 tommunum og 32 í 14 tommunni.. það var 11 í 14 tommunni hjá mér hehe.. úbbs :p og frá 27-35 í hinum :) lagaði þetta í hvelli :p

Ég hef einhvernvegin aldrei spáð í þessu.. kíki bara út.. "júbb, það er loft í dekkjunum" og held áfram að keyra hehe.. ekkert að spá í þrýsing :p Kannski maður farið að fylgjast aðeins meira með því eftir að Essó setti upp þessar töffaragræjur sínar :)

PostPosted: Fri 28. Apr 2006 19:21
by Zyklus
Hvaða „töffaragræjur“ er Esso búið að setja upp?

PostPosted: Fri 28. Apr 2006 19:29
by Stanky
Zyklus wrote:Hvaða „töffaragræjur“ er Esso búið að setja upp?

Þetta eru semsagt græjur, sem þú stillir sjálfur hversu mikinn þrýsting þú vilt hafa í dekkinu, og svo pumpar græjan þangað til það er kominn sá þrýstingur, gefur frá sér hljóð og þá ertu ready! ;)

PostPosted: Fri 28. Apr 2006 19:38
by Aron Andrew
Þetta er líka á Egó stöðvunum

PostPosted: Sat 29. Apr 2006 01:14
by D@BBI
ég skellti bara 32 pundum i 17'' 225.45.17 billinn er 1580kg. enn hann er dálítið stífur á öllum ójöfnum sem maður lendir á núna