bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Brotið sæti í E36 https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=1521 |
Page 1 of 1 |
Author: | jonthor [ Sat 17. May 2003 17:30 ] |
Post subject: | Brotið sæti í E36 |
Það virðist vera að sætið hjá mér sé brotið. Ég sit allavega skakkur í bílnum. Stuðningurinn við hægri hliðina hjá mér er enginn. Ég tók ekki eftir þessu þegar ég keypti bílinn, er nokkuð viss um að þetta hafi ekki verið svona. Mér skilst að þetta sé ekki algent en einn félagi minn lenti samt í þessu. Það kostar um 15-20þ að gera við þetta í TB..... einhverjar aðrar hugmyndir? Hefur einhver lent í þessu? |
Author: | saemi [ Sat 17. May 2003 18:25 ] |
Post subject: | |
Voðalega er þetta dýrt að gera við ! Það hlýtur þá að vera að það þurfi að taka tauið af sætinu. Ég lenti í þessu með sæti í sexunni minni, ![]() ![]() Ég gerði nú bara við það sjálfur, sauð þetta saman. Það er svolítið mál að gera þetta, að taka sætin úr og sundur sko. Sérstaklega ef maður hefur ekki gert neitt svona áður. En þetta er bara tímafrekt, ekkert voðalega flókið sko. Sæmi |
Author: | jonthor [ Sun 18. May 2003 02:04 ] |
Post subject: | líklegt |
Já mér sýnist af myndinni að þetta sé nákvæmlega það sem er að hjá mér. Ég hef samt enga aðstöðu til að laga þetta. Er þetta ekki álgrind? |
Author: | saemi [ Sun 18. May 2003 02:44 ] |
Post subject: | |
Nei nei, stál. Það þarf nú engin sérstök verkfæri í þetta, venjulegt lykla/topplyklasett ásamt skrúfjárnum dugar allavega hjá mér til að taka sætið úr og í sundur. Að vísu eina splittöng jú til að taka bakið frá setunni. Það væri hægt að skrúfa þetta sjálfur í sundur og fara með stykkið sér og láta sjóða í það á næsta verkstæði. Það ætti að kosta 500 kall eða svo. Sæmi |
Author: | jonthor [ Sun 18. May 2003 16:16 ] |
Post subject: | ok þakka þér |
Ok þakka þér, kannski ég kíli bara á þetta sjálfur. Athuga málið ![]() |
Author: | saemi [ Sun 18. May 2003 21:35 ] |
Post subject: | |
Það sakar aldrei að kíkja á þetta.. ! Ég reyndar hef enga reynslu af sætunum í þessum bíl sem þú ert með og hef ekki hugmynd um hvort þetta er svipað. En "good luck" Sæmi |
Author: | Haffi [ Mon 19. May 2003 00:19 ] |
Post subject: | |
Jón Þór ekki hringdir þú í mig um daginn og vildir BARA kaupa felgurnar ?? URR! |
Author: | jonthor [ Tue 20. May 2003 10:58 ] |
Post subject: | There it is..... :) |
There it is....... ![]() Jú jú mikið rétt. Það var reyndar áður en ég sá bílinn þinn á bmwkraftur. Sá bara auglýsinguna þína á bilasolur.is og ákvað að hringja ![]() ![]() |
Author: | jonthor [ Tue 20. May 2003 11:05 ] |
Post subject: | By the way |
By the way þá Gugnaði ég Sæmi, TB gerði við sætið fyrir rúman 10k. Fyrir 7-8 árum síðan hefði ég ekki hikað við að gera þetta sjálfur. <sálfræði> Ég átti Toyota corolla 1981 módel ( tvö stykki, annað í varahluti) og hann bilaði þó nokkuð en fór aldrei á verkstæði, ég gerði alltaf við hann sjálfur. Í seinni tíð er maður bara að verða Kerling. Pælir einhver í því annar en ég að áhuginn til að rannsaka eitthvað nýtt sjálfur einhverveginn dvínar með aldrinum. Verð miklu fljótar pirraður og nenni ekki of mikilli rannsóknarvinnu við hlutina. Ætli þetta endi ekki með því að ég þarf að láta börning mín kenna mér á fjarstýringuna og vekjaraklukkuna í framtíðinni. </sálfræði> |
Author: | Bjarki [ Thu 22. May 2003 17:00 ] |
Post subject: | |
Veit einhver hvad haegt er ad gera thegar efnissaeti rifna, er haegt ad kaupa nytt aklaedi fra bmw og skipta um eda kaupa but af aklaedinu og lata skipta um thad stykki sem er rifid?? Veit ad thad er haegt ad fa nytt a partasolu en thad getur verid dalitid erfitt. |
Author: | Haffi [ Thu 22. May 2003 17:54 ] |
Post subject: | |
Nei nei alls ekkert ókurteis, ég var bara pirraður á því að þú vildir bara felgurnar ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |