Page 1 of 1

Hversu mikið á að pumpa...?

PostPosted: Fri 21. Apr 2006 17:41
by Icekorn
Hvað á maður að hafa mikið í loft í 215/45R17 undir E36 320i?

PostPosted: Fri 21. Apr 2006 19:58
by ///Matti
Fínt að hafa 30-34 pund :wink:

PostPosted: Fri 21. Apr 2006 20:51
by pallorri
///Matti wrote:Fínt að hafa 30-34 pund :wink:


Jamm, vertu ekkert að fara yfir það
En vá það kom roskinn maður útí vinnu til mín í síðustu viku og hann var með
fokking 80 pund í fólksbíladekkinu sínu :shock:
Vantaði bara prentun á enninu á honum "ég vill deyja"
Svo hló gamli bara að þessu .. brjálaður dúddi :D

PostPosted: Fri 21. Apr 2006 20:57
by ///Matti
Já ég sá þetta oft þegar ég vann á Nesdekk,lið að koma með einmitt fokking 80 pund á bara yarisnum sínum eða eitthvað :? Þá hafði lekið kannski aðeins úr dekkinu og þá er bara PUUUMPAÐ :D

PostPosted: Fri 21. Apr 2006 20:59
by pallorri
Já þetta er nú bara ávísun uppá að dekkið hvellspringi :roll: :wink:

PostPosted: Sat 22. Apr 2006 00:41
by bjahja
Síðasta sumar lét setja sumardekkin mín á felgurnar og brunaði á bíladaga. Á leiðinni var ég að spá hvað þessi nýju dekk væru mega hörð, stoppaði í borgarnesi og tjekkaði á þrýstingum og hann maxaði mælinn :shock: :shock:
Gaurinn hefur bara pumpað eins og ég veit ekki hvað þegar hann setti dekkin undir :lol:

PostPosted: Sat 22. Apr 2006 01:12
by Geirinn
Stendur max 50psi á mínum Toyo. Er með þau í 30-32. Einhver kjaftur á einu dekkinu þannig að ég er með 3x30 og 1x32... en það lekur væntanlega úr því ... nú ef ekki þá sleppi ég því sjálfur niður í 30.

En svakalega er til mikið lið sem heldur að það sé duglegt að gera hluti sjálft þegar það er í raun bara að stofna sér í hættu. 80 psi :shock:

PostPosted: Sat 22. Apr 2006 01:12
by íbbi_
ég er yfirleitt með 30-35 í sona low profile dekkjum

PostPosted: Sat 22. Apr 2006 10:13
by Logi
Fer ekki æskilegur þrýstingur líka eftir þyngd bílsins?

PostPosted: Sat 22. Apr 2006 13:07
by bjahja
Þetta stendur allt saman í bílstjórahurðarfalsinu :wink: