Page 1 of 1

Að pósta myndum af bílnum sínum í bílar meðlima

PostPosted: Mon 17. Apr 2006 01:42
by D@BBI
Hvernig fer ég að því, virðist ekkert vera að ganga hjá mér!! Kv. Dabbi

PostPosted: Mon 17. Apr 2006 17:19
by JOGA
Sæll,

Þú þarft fyrst að hýsa myndirnar á netinu. Ég nota alltaf imagestation.com af gömlum vana en það eru komnar einhverjar íslenskar síður fyrir þetta.

Þegar þú ert búinn að koma myndunum fyrir á netinu setur þú bendilinn yfir myndina. Hægri smellir, ferð í properties og afritar (copy) alla slóðina í location.

Ferð þá í póstinn sem þú ert/varst búinn að skrifa á þann stað sem þú vilt hafa myndirnar. Ýtir á IMG - setur inn slóðina - ýtir aftur á IMG.
Þá ætti þetta að koma svona út: [img]slóðmyndar[/img]

Þá á þetta að vera klárt...


Gangi þér vel.

PostPosted: Mon 17. Apr 2006 17:38
by Angelic0-
JOGA wrote:Sæll,

Þú þarft fyrst að hýsa myndirnar á netinu. Ég nota alltaf imagestation.com af gömlum vana en það eru komnar einhverjar íslenskar síður fyrir þetta.

Þegar þú ert búinn að koma myndunum fyrir á netinu setur þú bendilinn yfir myndina. Hægri smellir, ferð í properties og afritar (copy) alla slóðina í location.

Ferð þá í póstinn sem þú ert/varst búinn að skrifa á þann stað sem þú vilt hafa myndirnar. Ýtir á IMG - setur inn slóðina - ýtir aftur á IMG.
Þá ætti þetta að koma svona út: [img]slóðmyndar[/img]

Þá á þetta að vera klárt...


Gangi þér vel.


Ef að þú ert að nota Mozilla Firefox einsog öllum velsæmandi mönnum ber að gera, þá er nóg að hægrismella og gera "Copy Image Location".

PostPosted: Mon 17. Apr 2006 23:34
by D@BBI
Takk fyrir, þetta er eftir að koma að góðum notum