Page 1 of 2

Kælivatn / Kühlwasser

PostPosted: Wed 12. Apr 2006 20:05
by Stanky
Jæja strákar.

Ég er búinn að fylla einum of oft á kælivatnið (forðabúrið) á undarlega stuttum tíma. Ég sé hvergi leka af honum ef honum er lagt í einhvern ákveðinn tíma. Hvað getur verið að valda þessu?

Með von um góð svör

kv,
haukur

PostPosted: Wed 12. Apr 2006 20:29
by Hannsi
dælan ónýt, farinn heddpakkning
hvernig lýsir þetta sér? lekur hratt af honum eða mjöööööög hægt?

PostPosted: Wed 12. Apr 2006 20:35
by Stanky
Það ætli ég þurfi ekki að bæta á hann á sirka 2-3 daga fresti... eða þá kemur ljósið... Stundum kemur ljósið í einn rúnt, svo kemur það ekki fyrr en eftir 2 daga...

PostPosted: Wed 12. Apr 2006 20:35
by Saxi
Ertu búinn að athuga hvort það er vatn í olíunni (hvít,grá eða drullubrún slikja á olíkukvarðanum og/eða í áfyllingartappanum)?

Búinn að athuga hvort það er olía í kælivatninu?

Gæti verið lítill leki á heitum stað. Þannig gætirðu kannski ekki séð hann greinilega þar sem vatnið hreinlega gufar samstundis upp.

Saxi

PostPosted: Wed 12. Apr 2006 20:47
by siggir
Er gangurinn slappur? Reykir hann mikið?

PostPosted: Wed 12. Apr 2006 20:48
by Stanky
Gangurinn er fínn... RPM hoppar allavega ekki upp og niður og hljóðið er fínt í lausagangi... Mér finnst hann ekki reykja mikið... allavega ekki í lausagangi!

PostPosted: Thu 13. Apr 2006 14:23
by finnbogi
þá held ég að eitthvað er bara að leka þú þarft bara að grandskoða það
þegar það lak hjá mér þá var ég og bjarki frekar lengi að finna sorce pf the problem
þá var þetta bara ein slangan sem var í fokki :wink:

PostPosted: Thu 13. Apr 2006 15:25
by Stanky
Vatnsdælan er bara farin! :D

SHIT

PostPosted: Thu 13. Apr 2006 23:50
by BeMostWanted
Sælir, heyrðu ég er í sama fucki nema gangurinn hjá mér er úti að skíta líka, hann drepur stundum á sér bara við það að ég stígi á kúplinguna og ég þarf að fylla á kælivatnið á ca. 1-2 daga fresti og eins og ég sagði þá er gangurinn í honum í fucki hann "rokkar" milli 500 :!: og 1100 rpm
hvað er að gerast með gullið mitt?

PostPosted: Fri 14. Apr 2006 00:10
by anger
heddpakning :D

PostPosted: Fri 14. Apr 2006 00:38
by BeMostWanted
er það allveg pottþétt?

PostPosted: Fri 14. Apr 2006 00:44
by ///M
BeMostWanted wrote:er það allveg pottþétt?


Athugaðu eftirfarandi:

Hvort hann leki nokkuð coolantinum á jörðina.
Hvort það sé hvít/brún skán í olíulokinu éða á dipstickinu.
Hvort það sé olía í kælivökvanum.
Hvort það séu lofbólur í kælivökvanum þegar bíllinn er í gangi.
Þjöppumældu

Segðu okku svo hverjar niðurstöðurnar voru og þá ætti að vera hægt
að gefa þér nokkuð pottþétt svar :)

PostPosted: Fri 14. Apr 2006 00:56
by BeMostWanted
hann lekur einhverjum viðbjóði á jörðina....held að það sé vatn og olía:S

PostPosted: Fri 14. Apr 2006 11:55
by BeMostWanted
Hérna ekki viti þið hvað svona hlutur gæti kostað á verkstæði??

hvað þyrfti að skipta um og ætti ég að fara með hann til B&L eða e-ð annað?

PostPosted: Fri 14. Apr 2006 14:34
by arnibjorn
BeMostWanted wrote:Hérna ekki viti þið hvað svona hlutur gæti kostað á verkstæði??

hvað þyrfti að skipta um og ætti ég að fara með hann til B&L eða e-ð annað?


Nýtt hedd þá eða?