Undarleg hljóð eftir smávegis leikfimi...
Jæææja. Núna var ég áðan að leika mér í sólinni á stóra bílaplaninu mínu.
Fólst þetta mestmegnis í því að beygja og gefa í.
Ætli þetta hafi ekki varað í svona 5 mínútur þar sem ég var að dunda mér að keyra í hringi og tók eins og 1 eða 2 vel útilátin slide.
Það sem þá gerðist var að það skyndilega bættist við eins og hátt hljóð(og þá meina ég öfugt við djúpt hljóð) frá bílnum. Hljóðið bættist við eftir eina krappa beygjuna. Ef ég halla mér út úr bílnum þá heyrist mér sem hljóðið komi frá hægra framhorni bílsins, líklegast úr hjólabúnaði.
Þetta hefur gerst einusinni áður og þá var hljóðið horfið eftir að bíllinn hafði staðið kyrr í einhverja 6 klst. Það kom þá einnig eftir svipað krappa beygju.
Núna langar mig að vita hvort fólk hafi einhverja hugmynd hvað gæti amað að?
Hefði haldið að þessir bílar ættu nú að geta þolað svona smotterí eins og þetta var.
Bifreiðin sem um ræðir er '92 árgerð af 320, E36, sjálfskipt.
Hún stendur nú og kólnar úti á stæði og vona ég auðvitað að hljóðið verði horfið eftir smástund. Kannski best að taka það fram að auðvitað var hún orðin vel heit þegar ég tók upp á þessum asnaprikum.
Viðbót;
Ef ég ætti að líkja hljóðinu við eitthvað þá myndi ég segja að það sé eiginlega bara nákvæmlega eins og þegar maður snýr stýrinu eins mikið og maður getur, þá kemur eitthvað hljóð í lok snúningsins.