Page 1 of 1

Stýrisvandræði á E30

PostPosted: Fri 07. Apr 2006 22:49
by edge
Sælir,
Jæja, nú fór stýrið nánast alveg hjá mér áðan.. Ég get snúið stýrinu í báðar áttir en ekkert gerist þegar bíllinn er stopp, en hann beygjir eitthvað þegar bíllinn er kominn á smá ferð. Veit einhver hvað gæti verið að? Getur verið að stýrismaskínan sé farin?

PostPosted: Fri 07. Apr 2006 23:37
by Geirinn
Ertu með mismikið í framdekkjunum ? Minn leitaði alveg svakalega mikið þegar það var lint hjá mér... í raun ótrúlega mikið að mínu mati.

PostPosted: Fri 07. Apr 2006 23:42
by edge
Geirinn wrote:Ertu með mismikið í framdekkjunum ? Minn leitaði alveg svakalega mikið þegar það var lint hjá mér... í raun ótrúlega mikið að mínu mati.


Hehe, held þú sért að misskilja... :) Ég get ekkert semsagt ekkert beygt bílnum, stýrið snýst bara en hjólin ekki... En svo þegar ég er kominn á smá ferð þá er hægt að beygja e-ð, en ég veit ekki hversu mikið, náði bara að leggja honum í stæði, vildi ekki vera að keyra hann eitthvað með stýrið í messi.

PostPosted: Fri 07. Apr 2006 23:46
by Geirinn
edge wrote:
Geirinn wrote:Ertu með mismikið í framdekkjunum ? Minn leitaði alveg svakalega mikið þegar það var lint hjá mér... í raun ótrúlega mikið að mínu mati.


Hehe, held þú sért að misskilja... :) Ég get ekkert semsagt ekkert beygt bílnum, stýrið snýst bara en hjólin ekki... En svo þegar ég er kominn á smá ferð þá er hægt að beygja e-ð, en ég veit ekki hversu mikið, náði bara að leggja honum í stæði, vildi ekki vera að keyra hann eitthvað með stýrið í messi.


Ach! Fyrirgefðu... svakalega tókst mér að mistúlka þetta. Vona að þú finnir lausn á þessu... :)

PostPosted: Tue 11. Apr 2006 04:18
by IngóJP
Gáðu hvort að stýrið sé ekki alveg örugglega fast :lol: