Page 1 of 1

Fastur í handbremsu - hvernig er best að losa?

PostPosted: Fri 07. Apr 2006 12:40
by bebecar
Jæja...

Búin að standa í smá viðgerðum á Golfinu, en hann gleymdist í handbremsu og er núna fastur. Ég á eftir að prófa að keyra hann af stað og sjá hvort hún losnar ekki bara eins og oftast er nóg. En ef það gengur ekki - kunnið þið einhver ráð til að losa handbremsuna?

Þarf ég kannski að taka þetta allt í sundur?

PostPosted: Fri 07. Apr 2006 12:44
by Einarsss
klippa á vírinn ? :?

PostPosted: Fri 07. Apr 2006 12:53
by bebecar
einarsss wrote:klippa á vírinn ? :?


hehe - vírinn er ekki vandamálið - þetta er gróið fast. ÉG er búin að losa handbremsuna sjálfa.

PostPosted: Fri 07. Apr 2006 13:22
by gstuning
taka þetta í sundur, eða hita ROSALEGA vel og setja svo dekkin aftur á og reyna hreyfa,
þetta er án efa armurinn sem er togað í

PostPosted: Fri 07. Apr 2006 13:34
by bebecar
gstuning wrote:taka þetta í sundur, eða hita ROSALEGA vel og setja svo dekkin aftur á og reyna hreyfa,
þetta er án efa armurinn sem er togað í


Ef hann losnar ekki þá prófa ég allavega fyrst að hita þetta...

PostPosted: Fri 07. Apr 2006 14:27
by siggir
bebecar wrote:
einarsss wrote:klippa á vírinn ? :?


hehe - vírinn er ekki vandamálið - þetta er gróið fast. ÉG er búin að losa handbremsuna sjálfa.


Semsagt klossarnir grónir fastir eða? Ef það er málið er best að taka bara hamar og banka sæmilega hressilega á þetta. Þá á að losna um klossana;)

PostPosted: Fri 07. Apr 2006 14:29
by xiberius
Venjulega þegar vinur minn lendir í þessu tekur hann bara nógu stóra sleggju og lemur duglega á felguna. Óþarfi að taka fram að við erum að tala um stálfelgur í öllum tilfellum.

Hef séð hann gera þetta á fullt af mismunandi bílum. Eina skiptið sem ég veit til þess að þetta hafi klikkað var á einhverri druslu sem var búin að standa MJÖG lengi, en þar sem það var bara verið að draga hana á síðasta hvílustað, þá var bara dekkið skrúfað undan og skálin mölvuð... :lol:

Svo veit ég náttúrulega ekkert hvort þú kærir þig um svona aðferðir, en datt í hug að minnast á þetta...

PostPosted: Fri 07. Apr 2006 14:36
by bebecar
Hita og banka... við skulum sjá hvort þetta losni ekki á morgun :D Takk fyrir hjálpina.

PostPosted: Fri 07. Apr 2006 14:40
by sindrib
ég lamdi alltaf á felguna þegar ég átti turbo coltinn minn, síðan þegar hann var kominn á álfelgur þá setti ég bara viðar kubb á milli, en hann var nátturulega á skálum, en golfinn liklega á diskum ekki satt

PostPosted: Tue 11. Apr 2006 04:20
by IngóJP
Getur virkað með að hita og berja á þetta og svo draga bílinn og láta eitthverja 2 juggast á honum