Page 1 of 2

Miðstöð blæs köldu/volgu

PostPosted: Mon 03. Apr 2006 13:01
by jonthor
Sælir

Miðstöðin hjá mér hefur tekið upp á því nýlega að blása köldu jafnvel þó bíllinn sé orðinn heitur. Stundum kemur volgt eftir einhvern tíma, en ekki mikill hiti. Bara svo það sé á hreinu þá er ég nýbúinn að skipta um:

Vatnsdælu
Vatnslás
Viftukúplingu
Kælivökva (nóg af vökva á honum)

Ég var að leita að svona vandamáli á vefnum okkar og fann þetta komment frá Bjarka:

Ef að vélin er á eðlilegum hita þ.e. hitnar þá er vatnslásinn í lagi.
Ég myndi þá frekar giska á ventilinn sem stýrir vantsflæðinu inn í miðstöðvarelement. Þetta er svona solenoid, segulrofi eða hvað það er kallað.
Öll svona kerfi eru með afturvirkni og stilla sig sjálfkrafa eftur völdu hitastigi. Þessi ventill er lykilatriðið í því að stjórna magninu af vatninu sem sér svo um að hita upp bílinn.


Er mikið mál að skipta um þennan ventil, er þetta ekki líklega málið?

PostPosted: Mon 03. Apr 2006 13:46
by asgeirholm
Ertu með Automatíska miðstöð?
ef svo er þá gætti þetta verið vandamálið!!
Ef miðstöðinn er að detta stunudm út þótt að miðstöðinn segji að hún eigi að vera í gangi þá er það þetta
http://www.macadamizer.com/bmwfix.html

PostPosted: Mon 03. Apr 2006 14:02
by jonthor
Neibb, analog miðstöð. Takk samt :)

PostPosted: Mon 03. Apr 2006 16:05
by íbbi_
heddpakning :?: :x

PostPosted: Mon 03. Apr 2006 16:08
by bjahja
íbbi_ wrote:heddpakning :?: :x

Er það ekki frekar svartsýnt

PostPosted: Mon 03. Apr 2006 16:13
by ///M
Er ekki bara loft á kerfinu fyrst það var verið að skipta um allt þetta dót, það er bleedvalve á vatnsláshúsinu (á m52 er það svona plast skrúfa sem þú losar með stóru stjörnuskrúfjárni minnir mig) lætur bílinn hitna og opnar fyrir valvinn og hefur hann opinn þangað til það kemur bara vatn upp um hann og lokar þá.

PostPosted: Mon 03. Apr 2006 16:15
by íbbi_
bjahja wrote:
íbbi_ wrote:heddpakning :?: :x

Er það ekki frekar svartsýnt


það er sona versti möguleikin, en þettas er eitt af þeim einkennum sem fylgja, auk þess sem þessir mótorar eiga þetta dáldið til, þó það sé nú ekkert meira en eðlilegt getur talist

PostPosted: Tue 04. Apr 2006 15:32
by jonthor
Ég hef enga trú á því að þetta sé heddpakkningin. Sé ekkert óeðlilegt við reykinn úr pústinu og bíllinn slær ekki feilpúst. Getur þetta ekki verið þessi ventill sem Bjarki var að stinga upp á?

PostPosted: Tue 04. Apr 2006 15:35
by Djofullinn
///M wrote:Er ekki bara loft á kerfinu fyrst það var verið að skipta um allt þetta dót, það er bleedvalve á vatnsláshúsinu (á m52 er það svona plast skrúfa sem þú losar með stóru stjörnuskrúfjárni minnir mig) lætur bílinn hitna og opnar fyrir valvinn og hefur hann opinn þangað til það kemur bara vatn upp um hann og lokar þá.
Mér finnst líklegra að þetta sé það sem Óskar talar um. Loft á kerfinu :)

PostPosted: Tue 04. Apr 2006 17:00
by Bjarki
Lýsingin á því þegar segulrofinn er ónýtur er bara heitt loft frá miðstöðinni. Hef lent í því að fá bara kalt loft og þá var loft á kerfinu. Þarft að láta bílinn hitna alveg og lofttæma, taka hring og lofttæma aftur.

PostPosted: Wed 05. Apr 2006 08:32
by jonthor
Já þetta var rétt, það vantaði bæði vatn á kassann og það var því augljóslega loft á kerfinu. Virkar brill núna. Takk.

PostPosted: Wed 05. Apr 2006 08:55
by gunnar
jonthor wrote:Já þetta var rétt, það vantaði bæði vatn á kassann og það var því augljóslega loft á kerfinu. Virkar brill núna. Takk.


Krafturinn hressir, bætir og lagar.. 8)

PostPosted: Wed 05. Apr 2006 11:06
by grettir
Minn byrjaði á þessu í vetur og eina sem ég fann á kraftinum var einmitt þetta post um þennan ventil.

Það kom síðan í ljós á föstudaginn að vatnskassinn er farinn að leka og það vantaði á kerfið. Bætti hálfum líter á hann og allt byrjaði að funhitna.

En það er semsagt vatnskassaviðgerð yfirvofandi. Búinn að panta element og hlakka til að fá þetta í lag loksins :)

Ég líka

PostPosted: Fri 07. Apr 2006 14:47
by asgeirholm
þetta er líka að gerast hjá mér núna fyrst að miðstöðinn blæs bara volgu!! hvar er þessi ventil?

Re: Ég líka

PostPosted: Fri 07. Apr 2006 16:18
by Bjarki
asgeirholm wrote:þetta er líka að gerast hjá mér núna fyrst að miðstöðinn blæs bara volgu!! hvar er þessi ventil?


alveg við hvalbakinn bílstjóramegin ofarlega þar sem túr og retúr fer inn á miðstöðvarelementið.