Page 1 of 1
Ending kælivökva

Posted:
Sun 02. Apr 2006 13:43
by mattiorn
Khulewasser ljósið kviknaði í annað skiptið hjá mér. Ég keypti bílinn í byrjun mars og ljósið er búið að koma tvisvar, en með góðu millibili.
Er eðlilegt að þurfa að auka á kælivökvann svona eða er eitthvað að leka kannski??
Re: Ending kælivökva

Posted:
Sun 02. Apr 2006 13:57
by Angelic0-
mattiorn wrote:Khulewasser ljósið kviknaði í annað skiptið hjá mér. Ég keypti bílinn í byrjun mars og ljósið er búið að koma tvisvar, en með góðu millibili.
Er eðlilegt að þurfa að auka á kælivökvann svona eða er eitthvað að leka kannski??
Er ekki neminn bara fucked... minnir að þessir nemar hafi aldrei verið til friðs í E30
Hann var meirasegja bögg í E39 hjá mér, þartil að ég fattaði að hann var ekki í sambandi


Posted:
Sun 02. Apr 2006 15:09
by Danni
Það hefur verið Coolant Level warning á bílnum mínum síðan ég fékk hann! Og líka þarna rúðupissið man ekki hvað það var. Virðist bara vera algeng bilun í nemunum á eldri BMW-um.

Posted:
Sun 02. Apr 2006 15:11
by mattiorn
Er neminn ekki ofan á boxinu þar sem maður fyllir á kælivökvann?
Allavega þá tók ég það úr sambandi og þreif, var drullugt, og bada bing bada búmm.. allt í himnalagi, tók ekki eftir neinum leka og það var engin olía í kælivökvanum, þannig að allt er í góðu núna


Posted:
Sun 02. Apr 2006 15:30
by zazou
Það er hollt fyrir bílvél að láta 'flusha' kælikerfið reglulega. Ég læt gera það yfirleitt þegar ég kaupi bíl.

Posted:
Sun 02. Apr 2006 15:35
by Geirinn
Ljósið hjá mér hefur bara komið þegar ein hosuklemma var ekki hert nægilega vel og það lak. Lagaðist um leið og ég bætti á kerfið.
Svo frétti ég af því að ef maður skiptir um á kerfinu að ljósið gæti logað í smá stund og horfið svo.

Posted:
Sun 02. Apr 2006 16:18
by finnbogi
já svo er líka reglan sú með endingar tíma á kælivökva
að vökvinn hefur endingu uppá 2-3 ár eða 50-70 þkm (fer eftir hvaða tegund)
því þá er kælivökvinn búinn að missa alla eginleika sína
eins og að vera tæringarvörn,frostvörn osfv

Posted:
Sun 02. Apr 2006 17:47
by Bjarki
Geirinn wrote:Svo frétti ég af því að ef maður skiptir um á kerfinu að ljósið gæti logað í smá stund og horfið svo.
Þetta er bara flotholt með málmi í og svo breytist segulsviðið. Sama í þessu öllu bara mismunandi útfærslur. Þannig ef skynjarinn er í lagi þá kemur ljósið og fer eftir magninu í forðabúrinu.

Posted:
Sun 02. Apr 2006 19:50
by Knud
Þetta gerðist líka hjá mér kom eitthvað eins og wascwasserstand í mælaborðinu.

Posted:
Sun 02. Apr 2006 20:03
by Steinieini
Þetta gerðist líka hjá mér kom eitthvað eins og wascwasserstand í mælaborðinu.
Nema ég sé að gera uppá bak...þá er þetta rúðupissið

Posted:
Mon 03. Apr 2006 00:56
by Lindemann
Steinieini wrote:Þetta gerðist líka hjá mér kom eitthvað eins og wascwasserstand í mælaborðinu.
Nema ég sé að gera uppá bak...þá er þetta rúðupissið
já, kælivökvinn er coolant(virðist vera kuhlwasser á þýsku)

Posted:
Mon 03. Apr 2006 15:41
by Geirinn
Knud wrote:Þetta gerðist líka hjá mér kom eitthvað eins og wascwasserstand í mælaborðinu.
Ég er svo tregur að ég hef brennt mig á þessu tvisvar... og ég á að heita ágætur í þýsku.
