Page 1 of 1

E 53 evrópumælasett

PostPosted: Sun 02. Apr 2006 13:32
by nordic
Veit e-k um góðan stað þar sem hægt er að kaupa evrópumælasett í E 53 ?? x 5 3,0 Mílur og gallon á skífunum fer óendanlega í taugarnar á mér (veit af ebay :) )

PostPosted: Mon 03. Apr 2006 02:47
by Eggert
Ég held að eina vitið sé að láta B&L sjá um svona swap...

PostPosted: Mon 03. Apr 2006 08:35
by nordic
Nei það held ég ekki. Það að skipta út mælasetti er ein einfaldasta aðgerð sem hægt er að gera á enum BMW. Vandamálið er að finna supplier á mælasettum.

PostPosted: Mon 03. Apr 2006 12:37
by Stebbtronic
Ég var nú ekki að leita að þessu, en datt í hug að pósta þessu þó að þú " vitir af ebay" :)

http://cgi.ebay.de/Tachoscheiben-f-Tach ... dZViewItem

PostPosted: Mon 03. Apr 2006 14:20
by nordic
Takk fyrir

Já ég var búinn að sjá þennan möguleika. Mér hefur verið ákveðið ráðið frá því að fara að opna og fikta í mælamótorum og mælavísum í þessu mælaborði.

Sá BMW fræðingur sem þetta ráð gaf er svo trúverðugur að þennan möguleika ætla ég alveg að láta í friði. Hinsvegar veit ég að ekkert mál að setja hringi utan um mælana.

PostPosted: Mon 03. Apr 2006 15:32
by Eggert
Einmitt þessvegna væri best að láta B&L sjá um þetta... þetta kostar, en þetta er eitthvað sem ég myndi pottþétt gera. Eitthvað sem fer í mínar fínustu.

PostPosted: Mon 03. Apr 2006 15:38
by nordic
Þú ert alveg að verða búinn að sannfæra mig. Ætli ég renni ekki uppeftir og sjái hvernig liggur á þeim í B&L.

Annars til að það sé á hreinu þá ætlaði ég aldrei að fara að fikta inni í mælakassanum heldur skipa um allan kassann með öllum mælunum

PostPosted: Mon 03. Apr 2006 15:40
by Eggert
Ég veit allavega um einn sem fór og lét Heklu breyta V8 Tuareg-inum sínum.. held það hafi kostað 80k með öllu. Money well spent if you ask me.


Annars verður þetta alltaf '''Ameríkutýpa''' :?

PostPosted: Wed 05. Apr 2006 21:31
by nordic
Ég er búinn að finna einn þýskan suppl. sem er að bjóða mælaborð á 299 eur. + ups Hann garanterar að allt pixlaborð sé nýtt í þeim borðum sem hann er að bjóða.

Er að hugsa um að kaupa af honum læt vita hvernig reynist.