Page 1 of 1

Stomp test

PostPosted: Fri 31. Mar 2006 11:16
by Svezel
Sælir félagar.

Hafa menn hérna geta framkvæmt þetta test á bílunum sínum eða er það staðreynd að þetta sé bara fyrir US-spec bíla? Ég var að reyna að framkvæma þetta hjá mér en tókst ekki en ég hef reyndar ekki gert margar tilraunir.

Testið gengur semsagt út á það að setja svissinn á 'on', bíða eftir að EML ljósið slokni, þrýsta svona á bensíngjöfinni í gólfið 5 sinnum á c.a 5sek (6 sinnum fyrir bank 2 á t.d. 750). Svo eiga inspection ljósin að blikka kóða sem má lesa úr hvort einhverjar bilanir séu.

Fyrir þá sem ekki vita hvað ég er að tala um þá eru upplýsingar hér:
http://www.europeantransmissions.com/Bu ... bmwcod.pdf

PostPosted: Fri 31. Mar 2006 11:30
by Stanky
virkar þetta f. e30, 325?

PostPosted: Fri 31. Mar 2006 11:42
by Einsii
Er þetta ekki bara sama og þegar hann er lesinn í TB ?

PostPosted: Fri 31. Mar 2006 12:00
by Svezel
þetta er bara svipað og diagnostic tölvan getur lesið nema hvað þetta kostar ekkert og maður getur gert þetta sjálfur þegar manni sýnist

PostPosted: Fri 31. Mar 2006 12:05
by gstuning
Þetta er fyrir motronic 1.3 og nýrra

PostPosted: Fri 31. Mar 2006 12:29
by Bjarki
virkar ekki fyrir euro bíla.