Page 1 of 1

smá hjálp... Problem solved;)

PostPosted: Sun 26. Mar 2006 14:33
by mattiorn
Bílinn minn vill ekki hrökkva í gang, var að setja vetrarblingerana undir og hann fer í gang strax, svo keyri ég nokkra metra til að setja hann á jafnsléttu. Þegar ég ætla svo að færa hann aftur vill hann ekki fara í gang. Hann snýr en tekur einhvernveginn ekki við sér... :cry:

Hvað gæti verið í gangi?

p.s. þetta er í fyrsta sinn sem bmw startar ekki hjá mér...

PostPosted: Sun 26. Mar 2006 14:57
by mattiorn
Það eru ekki nema 10l af bensíni eftir, gæti það skipt einhverju?
eða er þetta rafmagnsgeymirinn? það kveikna reyndar öll ljós og allt, og loftnetið fer upp og alles.... :?

PostPosted: Sun 26. Mar 2006 15:08
by elfar
blaut kveikja? raki í kveikju?

PostPosted: Sun 26. Mar 2006 21:08
by mattiorn
Þetta var víst ekki meira mál en það að það var of lítið bensín á bílnum og það sem var á honum dugði bara ekki :lol:

Ég reddaði mér brúsa og keypti Ísvara og eftir það rauk hann í gang og allt í gúddí. Brunaði svo á ESSO og stútfyllti bílinn og ætla að halda honum þannig í framtíðinni :wink:

ehe.. góð saga....

PostPosted: Sun 26. Mar 2006 22:39
by íbbi_
ég minni á inlegg frá þórði helgasyni um daginn á muninum að starta og fara í gang 8)

PostPosted: Sun 26. Mar 2006 22:50
by mattiorn
íbbi_ wrote:ég minni á inlegg frá þórði helgasyni um daginn á muninum að starta og fara í gang 8)


jájá.. ég skilid bara ekkert í því sko.. hélt ég væri að gera rétt... :oops:

PostPosted: Sun 26. Mar 2006 22:54
by Þórður Helgason
..... akkúrat ....

PostPosted: Sun 26. Mar 2006 23:12
by íbbi_
"bíllin startar sér" er ekki að bíllin fari í gang, bíllin startar sér þegar hann startarinn er að snúa mótornum, fyrst startaru og svo fer bíllin í gang

PostPosted: Mon 27. Mar 2006 00:28
by mattiorn
jááá.. þú ert að meina seinasta setningin sem ég skrifaði.. fatta það núna :wink: