Page 1 of 1

Mengun.

PostPosted: Sat 25. Mar 2006 11:52
by Eggert
Bíllinn minn fór í ástandsskoðun í gær, og þar kom fram að hann er aðeins yfir mörkunum hvað varðar mengun.

Hvað er hægt að gera í þessu til þess að minnka mengunina? Dugar að láta stilla vélina?

PostPosted: Sat 25. Mar 2006 13:11
by íbbi_
athugaðu kerti, þræði, loftsíu, hvarfinn gæti verið orðinn lelegur og flr,

PostPosted: Sat 25. Mar 2006 13:17
by Bjarkih
Og vertu viss um að vélin sé nógu heit, ég flaskaði á því í haust fór beint í skoðun eftir vinnu. Sem betur fer var skoðunargaurinn almenninlegur og lét hann hitna áður en hann tók endanlega mælingu.

PostPosted: Sat 25. Mar 2006 17:54
by Jónki 320i ´84
íbbi_ wrote:athugaðu kerti, þræði, loftsíu, hvarfinn gæti verið orðinn lelegur og flr,


Ég myndi byrja á því að skipta um olíu, og ef það virkar ekki þá skaltu fara í það sem íbbi er að tala um :wink:
Mjög oft er það gömul olía sem gerir það að verkum að bíllinn mengar mikið :wink:

PostPosted: Sat 25. Mar 2006 21:25
by Eggert
Nýsmurður svo það eru bæði ný olía og loftsía. Takk samt fyrir ábendingarnar.

PostPosted: Sat 25. Mar 2006 21:27
by Jónki 320i ´84
Eggert wrote:Nýsmurður svo það eru bæði ný olía og loftsía. Takk samt fyrir ábendingarnar.


Prófaðu þá að skipta um kerti, gæti líka verið að hvarfinn sé eitthvað skrítinn :wink:

PostPosted: Sat 25. Mar 2006 21:44
by Eggert
Það getur vel verið að það sé kominn tími á kerti hjá mér, en ég er samt ekki að skilja(með minni takmörkuðu vélfræði kunnáttu) hvernig það getur haft áhrif.

Er hann þá að gefa lélegan neista og brennir illa öllu bensíninu?

...ég hélt bara að annaðhvort myndi það brenna eða ekki.

PostPosted: Sat 25. Mar 2006 22:44
by aronjarl
kannski ágætt að taka fram hvenrig bíl þú ert með
:idea:

PostPosted: Sun 26. Mar 2006 00:03
by Einarsss
hann er á e39 520 að ég held örruglega með m52 vélina

PostPosted: Sun 26. Mar 2006 03:06
by Eggert
einarsss wrote:hann er á e39 520 að ég held örruglega með m52 vélina


Hárrétt...