Er ekki öruggglega rétt að allir 540 bílar komi með innbyggðri þjófavörn?
Þegar ég læsi mínum blikkar ljósið góða og alles en það virðist bara ekki vera nokkur leið til að setja kerfið af stað!
Sama hvort ég sitji inn í bílnum þegar ég læsi og viðhefst þar í 3-4 mín.
Ekki það að það skipti stór máli, stock útvarp og lítil verðmæti, en maður vil hafa þetta í lagi.
Eina skiptið sem ég hef heyrt í þjófavörninni var þegar ég var með bílinn læstan en opnaði skottið og var að vinna í að taka rafgeymirinn úr sambandi, þá skyndilega fór eitthvað hávært bíp í gang sem ég þurfti að slökkva með fjarstýringunni.
Bíllinn gefur heldur aldrei frá sér hljóð þegar hann er læstur eða opnaður.
Er þetta kannski stillingaratriði ?

