Page 1 of 1

lausagangur í e34 520

PostPosted: Fri 17. Mar 2006 13:56
by loserkid
það er ekki nógu stöðugur gangur í vélinni þegar hann er í lausagangi.. og þar sem ég veit ekkineitt um bíla né vélar þá gætuði kannski sagt mer hvað ég gæti gert eða athugað? einhver sagði mer að þetta væri léleg kerti og annar að þetta gæti verið að hann sé bara að ganga á 5cylindrum?

já og svo var ég líka að pæla það kemur alltaf svo óeðlilega mikil móða í hann, sama hvortað hann se buinn að standa úti eða er bara á rúntinum eða hvað, gæti þetta verið leleg frjókornasía? ekki veit eg hehe

en já lika ef þið ættuð afturljós á hann með glærum stefnuljósum til sölu ódýrt
takk fyrir :wink:

PostPosted: Fri 17. Mar 2006 15:16
by Bjarki
Lausagangsskynjari svona það fyrsta sem manni dettur í hug en getur verið margt annað. Aldrei vitlaust að taka svona gamla bíla í létt viðhald og skipta um olíu, síu, kerti, loftsíu. Ætti að borga sig upp á þeim tímum sem við lifum á þegar líterinn af eldsneyti kostar of mikið.
Það þarf náttúrlega að ventlastilla m20 vélar líka. Bíllinn gengur tussugang ef hann er bara að ganga á 5.
Móða gæti verið gat á miðstöðvarelementinu! Fara í þessum bílum, pain að skipta um það. En oftast finnst kælivökvalykt líka inní bílnum ef elementið er farið.

PostPosted: Sat 18. Mar 2006 04:25
by Angelic0-
gæti þetta ekki líka verið "sogbelgurinn" s.s. barkinn á milli loftsíubox's og throttle body ?

PostPosted: Sat 18. Mar 2006 05:04
by Hannsi
rétt hjá Angelic0- tjékkaðu líka á sogbelgnum!

það er barkinn á milli lofsíubox og innspýtingarinnar ;)

PostPosted: Sat 18. Mar 2006 08:46
by Helgi M
Svo getur líka verið gott að þrífa loftflæðimælin :D

PostPosted: Sat 18. Mar 2006 13:39
by loserkid
takk kærlega fyrir svörin strákar.. núna fer maður og kikir á þetta :D 8)

PostPosted: Sat 18. Mar 2006 15:57
by Tasken
ég lenti líka í því hjá mér að hann gekk illa þá var einhver stútur á innsogsgreinini ekki nægilega hertur og þá kom gangurinn alveg eðlilegur aftur bara smá falskt loft og hann byrjar að ganga illa mjög gott að ganga úr skugga um að allt sé þétt kringum soggreinina og svo ghjá loftsíunni

PostPosted: Sun 19. Mar 2006 19:15
by loserkid
jéss takk fyrir tékka á þvi.. 8)