Page 1 of 2
Rafmagnsvesen!

Posted:
Thu 16. Mar 2006 16:39
by Stanky
Sælir.... Þegar ég fékk bílinn í upphafi var alltaf smá rafmagnsvesen, rafmagnið fór af á svona 2 vikna fresti, til eða frá.
Núna í morgun var hann rafmagnslaus og fékk mömmu til að gefa mér start, allt virkaði og ég tók langan rúnt niður á laugarveg. Þar stóð bíllinn í rúma 3 klukkutíma, svo kem ég útí bíl, sný lyklingum og nákvæmlega EKKERT gerist, engin hæg snúningshljóð eða ekkert. Vinur minn kemur og gefur mér start, ég keyri heim og tek auka hring í þeim tilgangi að hlaða geyminn. Kem svo heim, drep á bílnum og ætla að starta aftur, strax, en það gerist það sama. EKKERT gerðist, engin hljóð eða neitt.
Ég fékk notaðann altarnator og geymi síðasta haus, og hann hefur verið til friðs þangað til núna.
Hvað er vesenið?
kv,
haukur

Posted:
Thu 16. Mar 2006 16:42
by gstuning
geymirinn er líklega of slappur,
fáðu þér annann og farðu strax í að leita eftir lekum

Posted:
Thu 16. Mar 2006 16:44
by Stanky
gstuning wrote:geymirinn er líklega of slappur,
fáðu þér annann og farðu strax í að leita eftir lekum
Lekum?


Posted:
Thu 16. Mar 2006 16:45
by Einarsss
rafmagns útleiðslu aka rafmagnsleki


Posted:
Thu 16. Mar 2006 16:46
by Stanky
Okay, hvernig leitar maður af svoleiðis? :O

Posted:
Thu 16. Mar 2006 16:48
by Geirinn
Gaman að stoppa umferðina á Laugarveginum


Posted:
Thu 16. Mar 2006 16:50
by Einarsss
færð þér svona volta mæli, setur á jörðina og plúsinn á geyminum .... kippir svo einu öryggi úr í einu og fylgist með hvort að voltin hætti að minnka .. (tölurnar á mælinum ættu að minnka hægt og rólega ef það er að leiða út einhverstaðar) svo þegar þú ert búinn að finna út á hvaða´öryggi það leiðir út í gegnum ... geturu farið að skoða vírana tengdu því

Posted:
Thu 16. Mar 2006 16:50
by Stanky
einarsss wrote:færð þér svona volta mæli, setur á jörðina og plúsinn á geyminum .... kippir svo einu öryggi úr í einu og fylgist með hvort að voltin hætti að minnka .. (tölurnar á mælinum ættu að minnka hægt og rólega ef það er að leiða út einhverstaðar) svo þegar þú ert búinn að finna út á hvaða´öryggi það leiðir út í gegnum ... geturu farið að skoða vírana tengdu því
Þakka þér fyrir þetta


Posted:
Thu 16. Mar 2006 16:52
by gstuning
Ef þú ert með amper mælir þá geturðu fylgst með strauminum þegar þú tekur úr öryggi,

Posted:
Thu 16. Mar 2006 16:54
by Stanky
Hvernig geymi á maður að fá sér? Gerð og stærð etc?

Posted:
Thu 16. Mar 2006 16:56
by gstuning
Stanky wrote:Hvernig geymi á maður að fá sér? Gerð og stærð etc?
eins og þú ert með bara,

Posted:
Thu 16. Mar 2006 16:59
by Stanky
vitiði hvað geymir kostar ca?

Posted:
Thu 16. Mar 2006 17:00
by Kristjan
10-13 þúsund minnir mig að ég hafi borgað síðast fyrir rafgeymi

Posted:
Thu 16. Mar 2006 17:35
by Lindemann
Ég borgaði 15þús fyrir geymi sem ég keypti í minn um daginn.......og svo passaði hann ekki einusinni afþví ég hafði mælt vitlaust


Posted:
Thu 16. Mar 2006 19:43
by siggir
Ef þetta er blautgeymir þá er kannski hægt að lækna hann. Bæta á hann vatni, hreinsa skautin og setja hann í hleðslu í svona tvo daga.