Page 1 of 1
merki í mælaborðið?

Posted:
Wed 08. Mar 2006 12:25
by anger
heyrð þegar eg svissa á bilinn minn þá kemur svona gult véla merki (held eg) allavega svona næstum kassalega en með kannski viftureim og svona fíneri, sorry get ekki utskyrt þetta betur, en hvað gæti þetta verið ? þetta fer af þegar eg kveiki á bilnum, er bara þegar eg svissa á hann s.s.
z3 btw

Posted:
Wed 08. Mar 2006 13:20
by siggir
Eitthvað svipað þessu?


Posted:
Wed 08. Mar 2006 13:22
by anger
jam en það er ekki rautt heldur gult

Posted:
Wed 08. Mar 2006 13:26
by HPH
í renaultinum táknar þetta vélar bilun og að maður eigi að fara með bílin strax á verkstæði.

Posted:
Wed 08. Mar 2006 13:44
by anger
TB sagði að ef það væri rautt þa væri þetta hættulegt en gult þa bara einhvað að kikja á þetta

Posted:
Wed 08. Mar 2006 15:16
by Schulii
Gult þýðir einmitt bara aðvörun í öllum svona ljósum í mælaborði en rautt er yfirleitt bilun. Þannig að ég myndi segja bara líta á þetta sem fyrst og láta lesa.

Posted:
Wed 08. Mar 2006 15:36
by siggir
Þetta er check engine ljósið sem kviknar yfirleitt í öllum bílum þegar þeim er startað en slökknar svo eftir smástund, svipað og smurljósið. En ef þér finnst þetta óeðlilegt þá skaltu láta kíkja á þetta.

Posted:
Wed 08. Mar 2006 16:03
by anger
ja sko það fer ekkert þegar eg svissa bara á hann, ABS og öll þau ljós þau fara eftir sma stund, en þetta ljos fer eki fyrr en eg starta honum

:D

Posted:
Wed 08. Mar 2006 18:30
by siggir
Er það kveikt meðan hann er að starta en slokknar svo um leið og hann fer að ganga?

Posted:
Wed 08. Mar 2006 19:57
by Hannsi
Það getur verið að nemi eða einhvað tengt innspýtingu að ræða oftast það þegar þetta ljós kemur.
Hvernig er gangurinn í honum er hann leiðinnlegur uppá snúning?
ef svo er hann líklega að ganga á 5 og spýssi farinn

Posted:
Wed 08. Mar 2006 20:59
by Lindemann
ef það er ekki kveikt þegar bíllinn er í gangi er þetta ekkert... bara eins og með olíuljósið slökknar um leið og það er kominn nægilegur smurþrýstingur.
Þetta er líklega bara tengt einhverjum skynjara í vélinni

Posted:
Wed 08. Mar 2006 23:59
by anger
það fer um leið og vélin fer að ganga, bara um leið og eg sleppi lyklinum, en það er eitt, eg var með hann i lausa gangi um daginn og þa kom svona drumm eins og hann vildi drepa á ser, fór í svona 5 þs snuninga í staðinn fyrir kannski 1 þusund, en skeði ekkert, bara geðri þetta í 1 sec og fór strax aftur í normal
