Page 1 of 1

Hjálp!

PostPosted: Thu 02. Mar 2006 22:52
by EinarAron
Já..
Bíllinn minn vill ekki í gang!
Fór með hann ínní bílskúr áðan eftir að hann hafði virkað mjög vel eins og hann gerir alltaf, renni honum inn og byrja að þvo hann. Eyði frekar miklum tíma í þetta og svona í leiðinni tjakka ég hann upp öðrum megin til að kíkja á kastarann sem var bilaður og sá að snúran var slitin nema hvað þegar ég er búinn að þrífa bílinn og ætla að renna honum út vill hann ekki í gang (var með svissað á hann og útvarpið í gangi allan tíman) en hann vill bara ekki í gang. Það er eins og hann sé alveg að starta sér en kafni svo einhvernvegin í statinu :?: :?: :?:
Öll hjálp vel þegin!

PostPosted: Thu 02. Mar 2006 22:55
by bjahja
Rafmagnslaus eða þvoðirðu vélarsalinn?

PostPosted: Thu 02. Mar 2006 22:56
by EinarAron
bjahja wrote:Rafmagnslaus eða þvoðirðu vélarsalinn?


Þvoði vélarsalinn ekki og ég held að hann sé ekki rafmagnslaus eina sem var í gangi var útvarpið og þetta voru kannski 3-4 tímar :?

PostPosted: Thu 02. Mar 2006 23:03
by Kalli
Gefðu honum start og prófaðu, þetta er mjög líklega það :)
Átti einu sinni bíl sem ég gat ekki haft útvarp í gangi í 15min og þá var hann dauður, bara handónýtur rafgeymir..


Edit, Og já það sem þú lýsir, á mjög vel við rafgeymir sem er ekki nógu og vel hlaðinn.. ;)

PostPosted: Thu 02. Mar 2006 23:11
by bjahja
Jámm ég myndi giska á rafmagnið..........einmitt af því þú varst með útvarpið í gangi svona lengi, þá gæti rafgeymirinn bara orðinn lélegur og nær ekki að starta honum.

PostPosted: Thu 02. Mar 2006 23:12
by arnibjorn
bjahja wrote:Jámm ég myndi giska á rafmagnið..........einmitt af því þú varst með útvarpið í gangi svona lengi, þá gæti rafgeymirinn bara orðinn lélegur og nær ekki að starta honum.


Já ég hugsa að þetta sé málið.. ef að rafgeymirinn er orðinn lélegur þá kæmi það mér ekkert á óvart að hann sé bara rafmagnslaus eftir 3-4 tíma..

PostPosted: Fri 03. Mar 2006 00:21
by EinarAron
takk takk.. hann var rafmagnslaus og það vantaði vatn á kassan og sýru ógeð á plúsnum, en allavega þetta reddaðist og takk fyrir svöri ég er svo alveg nýr í þessu og skil voðalega lítið en er að reyna að skila þetta allavega :)

PostPosted: Fri 03. Mar 2006 19:33
by iar
Svo er bara að splæa í eitthvað ódýrt útvarp í skúrinn! ;-)