Bíllinn minn vill ekki í gang!
Fór með hann ínní bílskúr áðan eftir að hann hafði virkað mjög vel eins og hann gerir alltaf, renni honum inn og byrja að þvo hann. Eyði frekar miklum tíma í þetta og svona í leiðinni tjakka ég hann upp öðrum megin til að kíkja á kastarann sem var bilaður og sá að snúran var slitin nema hvað þegar ég er búinn að þrífa bílinn og ætla að renna honum út vill hann ekki í gang (var með svissað á hann og útvarpið í gangi allan tíman) en hann vill bara ekki í gang. Það er eins og hann sé alveg að starta sér en kafni svo einhvernvegin í statinu
Öll hjálp vel þegin!

