Xenon

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Xenon

Postby Þórir » Wed 01. Mar 2006 20:36

Sælir Xenon spesíalistar.

Getiði sagt mér eitt? Mig langar að vita hver munurinn sé á að vera með 8000K eða 6000K Xenon kerfi. Ég veit að munurinn liggur í litnum á bjarmanum en er ljósdreifingin frábrugðin? Er endingin minni eða meiri?

Kveðja
Þórir I
User avatar
Þórir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 597
Joined: Fri 20. Dec 2002 22:00
Location: R.vík

Leit

Postby Þórir » Wed 01. Mar 2006 22:28

Jahá, þar hljóp ég á mig, notaði leitina (eins og maður á að gera fyrst) og fann frábæra grein eftir "Xenon Kónginn" Svezel.
User avatar
Þórir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 597
Joined: Fri 20. Dec 2002 22:00
Location: R.vík

Re: Leit

Postby Angelic0- » Wed 01. Mar 2006 23:46

Þórir wrote:Jahá, þar hljóp ég á mig, notaði leitina (eins og maður á að gera fyrst) og fann frábæra grein eftir "Xenon Kónginn" Svezel.


URL á það...?
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík

Re: Leit

Postby arnibjorn » Wed 01. Mar 2006 23:51

Angelic0- wrote:
Þórir wrote:Jahá, þar hljóp ég á mig, notaði leitina (eins og maður á að gera fyrst) og fann frábæra grein eftir "Xenon Kónginn" Svezel.


URL á það...?


Leitaðu bara sjálfur.. leitið og þér munið finna :)
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby Svezel » Wed 01. Mar 2006 23:55

það er einn galli við þennan litakvarða að menn eru eitthvað misvísandi í notkun hans, stundum er 8000k bara nánast hvítt en stundum nánast alveg blátt. líklega eru menn eitthvað að hringla í staðalefninu því ekki öll efni lýsa sama ljósi við sama hita

í grunnskilgreiningu á xenon birtu þá á 6000k að vera bláleitt hvítt ljós en 8000K bara blátt en því hefur eitthvað skolast til í seinni tíð enda framleiðendur búnir að átta sig að hærri tölur selja betur

ég hef sjálfur verið með 8000k sem er hvítleitt og það er mjög skemmtileg birta af því, sést greinilega að um xenon er að ræða og lýsir vel án þess að verða eitthvað strumpaljós

ljóskerin hafa líka gríðarlega mikið að segja, projector ljós "hvíta" birtuna t.d. rosalega mikið auk þess jú að focusa birtunni betur

endingin er alveg eins eftir lit og hefur yfirleitt bara með gæði og frágang kerfanna að gera.
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Xenon

Postby Þórir » Thu 02. Mar 2006 00:00

Ok.

Gott að vita, þannig er nefnilega mál með vexti að ég pantaði smá dót af ebay sem skilaði sér ekki. Gaurinn ætlar í staðinn að láta mig hafa HID kerfi á betri prís og með afsláttarkjörum í staðinn. Hann er að spyrja hvort ég vilji 6000K eða 8000K.

Hmmm, nú er ég efins. Hvort finnst ykkur að maður ætti smella sér á?
User avatar
Þórir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 597
Joined: Fri 20. Dec 2002 22:00
Location: R.vík

Postby Svezel » Thu 02. Mar 2006 00:02

ég myndi taka 6000K ef það er í boði
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby bjahja » Thu 02. Mar 2006 00:04

Klárlega 6000k
Það er talað um að birtan fari að minnka þegar þetta er komið yfir 5000k minnir mig. TD þá kemur BMW orginal með 4300 (aftur minnir mig) og framleiðendur eru oft farnir að lita perurnar blár þegar þetta er komið í svona hátt k (8000k+)
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Takk

Postby Þórir » Thu 02. Mar 2006 00:08

Já, takk fyrir það. Ég var búinn að senda honum það svar fyrr í kvöld þannig að ég tek það örugglega. Það verður gaman að sjá hvernig þetta kemur út.

Kv
Þórir I.
User avatar
Þórir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 597
Joined: Fri 20. Dec 2002 22:00
Location: R.vík


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 16 guests