Page 1 of 3
bremsu "stimpill"

Posted:
Mon 27. Feb 2006 19:53
by gunnar
Hvað getur orsakað að bremsu stimpillinn vilji ekki fara inn, ég er búinn að nota risastóra þvingu á þetta og hann vill ekki fara. Fór inn hinu meginn á bílnum strax...
er eitthvað sem maður getur gert eða er bara að hamast?

Posted:
Mon 27. Feb 2006 19:55
by Eggert
Ertu með ventilinn opinn þannig að kerfið blæði meðan þú ert að þessu? Ég myndi prófa að hafa það opið.
Svo bara bara tekst þetta með smá ofbeldi

það er örugglega bara loft þarna fyrir eða eitthvað.

Posted:
Mon 27. Feb 2006 19:57
by gunnar
Nei ég er ekki með ventilinn opinn, hvernig opna ég hann ?

Posted:
Mon 27. Feb 2006 19:58
by Eggert
Ég er ekki með þetta í hausnum, en á seinasta bíl sem ég gerði þetta við þá var lítill ventill sem maður opnaði með litlum lykli, nr. 8 eða 9 eða eitthvað. Ætti að vera augljóst.

Posted:
Mon 27. Feb 2006 20:05
by gunnar
ekki er þetta slangan sem tengist í sjálfan bremsu kalíberinn..

Posted:
Mon 27. Feb 2006 20:06
by e30Fan
nibb lítill stubbur oftast þakin í drullu :p

Posted:
Mon 27. Feb 2006 20:07
by gunnar
ahh i see,,,, svona eins og andlitið á mér er núna.. djöfull gleymir maður alltaf að maður er skítugur á höndunum


Posted:
Mon 27. Feb 2006 20:25
by gunnar
er þetta eins og ventill, einhver vír fastur í þetta hjá mér líka, gat náð honum af,...
Þetta virðist vera lítill lykill sem þarf í þetta, ekki hægt að nota topp.. og ég á þennan lykil ekki


Posted:
Mon 27. Feb 2006 21:08
by aronjarl
þú átt ekkert að opna ventilinn.!
það hjálpar ekkert.
Stimpillinn er sennilega eitthvað skakkur í hjá þér mæli með að þú pumpir hann út og hreinsar hann gæti verið kominn einhver tæring og skítur á hann, skoðaðu gúmmi hringinn utanum hann sthugaðu hvort hann sé ekki ok.
þrífðu þetta upp og reyndu aftur, helst ekki skakt átak með því sem þú þvingar hann inn.


Posted:
Mon 27. Feb 2006 21:09
by srr
Eru menn ekki að tala um blæðingarnippilinn ?
Hjá mér hefur 8mm alltaf "átt" að virka....
Á endanum hefur Mr WiseGrip þurft að bjarga málunum.....

Posted:
Mon 27. Feb 2006 21:16
by jens
Eins og Aron sagði þá skaltu skoða hvort óhreinindi hafa komist inn fyrir gúmmíið ef svo er skaltu þrífa mjög vel og ganga úr skugga um það hvort gummíið sé heilt.

Posted:
Mon 27. Feb 2006 21:27
by aronjarl
ef þú þarf að loftæma þá er allavegana 7mm lykill á þessum loftnippil á E30 veit ekki með E36.
gangi þér vel.

Posted:
Mon 27. Feb 2006 23:04
by gunnar
Já þetta er fast..
Búinn að reyna setja smá "saumavélaolíu og WD40".. á þetta og leyfa þessu að liggja aðeins.. Þetta er einmitt þeim megin sem klossarnir voru meira eyddir...
Er eitthver séns að ná þessu? Ég var með þvingu, og járnstykki á milli þannig átakið væri svipað og ég náði þessu ekki inn.
Ætli endi ekki með því að ég þurfi að skipta um dælu


Posted:
Mon 27. Feb 2006 23:10
by aronjarl
pumpaðu út og inn aftur
eins og þú sért að taka á
KELLINGU!!!


Posted:
Mon 27. Feb 2006 23:14
by Djofullinn
aronjarl wrote:pumpaðu út og inn aftur
eins og þú sért að taka á
KELLINGU!!! 
