Page 1 of 1

Að tengja radarvara við rafmagn?!

PostPosted: Mon 27. Feb 2006 19:26
by Hallipals
Hvar get ég tengt radarvarann minn við rafmagn svo að það kvikni á honum sjálfkrafa þegar ég kveiki á bílnum? Þægilegt að hafa þetta bara tengt svo maður gleymi ekki að tengja þetta nauðsynlega dót! Ef einhver veit um auðvelda leið til að redda þessu þá endilega láta mig vita

kv.Halli

PostPosted: Mon 27. Feb 2006 19:27
by Angelic0-
rippar snúruna þína og tengir inn á svissinn !

PostPosted: Mon 27. Feb 2006 19:29
by Jónki 320i ´84
Sviss eða klukkuna :wink:

PostPosted: Mon 27. Feb 2006 19:33
by Bjarki
Ekki langt að fara í svissaðann straum hjá útvarpinu.
Myndi fara í íhluti og kaupa rétta tengið í radarvarann og sleppa því að eyðileggja snúrna sem kemur með honum.

Jónki 320i ´84 wrote:Sviss eða klukkuna :wink:

klukkan hlýtur að vera sístraumur eins og memory vírinn í útvarpið...
Menn vilja láta slökkna á fasttengdum radarvara.

t

PostPosted: Mon 27. Feb 2006 19:36
by Hallipals
ok prófa þetta. Þakka fljótleg svör drengir

PostPosted: Mon 27. Feb 2006 20:11
by Twincam
Á poloinum mínum er ég með radarvarann tengdan inn á svissaða strauminn í útvarpinu bara... svo þæginlegt því að á flestum nýlegum spilurum er auka úttak á svissaða strauminum í víratenginu :wink:

Fór bara í búð þarna niðri á hvað.. Skúlagötu? æji, í sömu húsalengju og Ræsir er. Og fékk þar slétta snúru (ekki hringaða) og átti svo rétta tengið til að stinga í hana og í radarvarann.. svo það er mikið þæginlegra en að hafa hringaða snúru út um allt mælaborð :?

PostPosted: Mon 27. Feb 2006 21:20
by 98.OKT
Ég hef alltaf tengt radarvara hjá mér í vírana í sígarettukveikjaranum.

PostPosted: Mon 27. Feb 2006 21:30
by Einsii
98.OKT wrote:Ég hef alltaf tengt radarvara hjá mér í vírana í sígarettukveikjaranum.

vá löng leið.. Annars er nokkuð bein leið frá ristinni ofaná mælaborðinu í Eldri fimmum niður í spilarann.. rosalega ísí og í mestalagi 15cm af snúru sjáanlegir

PostPosted: Mon 27. Feb 2006 23:07
by Bjarki
98.OKT wrote:Ég hef alltaf tengt radarvara hjá mér í vírana í sígarettukveikjaranum.

það er sístraumur í kveikjaranum í BMW, þá er alltaf kveikt á radarvaranum!

PostPosted: Tue 28. Feb 2006 18:34
by 98.OKT
Bjarki wrote:
98.OKT wrote:Ég hef alltaf tengt radarvara hjá mér í vírana í sígarettukveikjaranum.

það er sístraumur í kveikjaranum í BMW, þá er alltaf kveikt á radarvaranum!


Hef reyndar ekki tengt þetta við neinn af BMW bílunum sem ég hef átt, bara í Toyotu Carinu og Nissan 200sx, í þeim slökknaði alltaf á radarvaranum.

PostPosted: Thu 02. Mar 2006 15:46
by Jón Þór
Það er ekki sístraumur á sígókveikjaranum í mínum bmw og minn radar er tengdur bara þangað, sérð kannski 2 cm af snúru....